Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Fyrsta tap Tindastólsmanna
Í gærkvöldi fór fram viðureign Tindastóls og KF á Sauðárkróksvelli, þar sem Fjallabyggð hafði betur en leikurinn endaði 1-3. Þetta er þá fyrsta tap Tindastóls í deildinni á tímabilinu en þeir deila nú fyrstu tveim sætunum með Víði úr Garði. Stólarnir eru þó enn efstir vegna betri markatölu.
-
Tvö hús á Króknum í hópi ódýrustu einbýlishúsa landsins
Það er eitt og annað sem fær athygli fjölmiðla. Þannig var umfjöllun á DV.is um helgina þar sem sagt var frá tíu ódýrustu einbýlishúsunum á Íslandi í dag en fram kemur að þau ódýrustu kosta á bilinu 11-30 milljónir. Það sem kemur kannski á óvart er að tvö af húsunum í þessari upptalningu eru á Sauðárkróki. -
HIP Fest 2026: Fimmta alþjóðlega brúðulistahátíðin á Hvammstanga
Dagana 26.–28. júní næstkomandi verður HIP Fest, alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga, haldin í fimmta sinn. Á undanförnum árum hefur hátíðin vakið athygli bæði innanlands og utan fyrir metnaðarfulla dagskrá, alþjóðlega vinkilinn og einstaka nálægð milli listamanna og gesta. -
-
-
Fóru yfir mikilvægi hjálmsins
Í gær, þriðjudaginn 9. júní, heimsótti lögreglan á Norðurlandi vestra leikskólann Ásgarð á Hvammstanga. Lögreglan skoðaði hjól barnanna og ræddi við þau um mikilvægi þess að hjólin séu í góðu lagi, sérstaklega að bremsurnar virki sem skyldi. Einnig var lögð áhersla á að börnin noti alltaf hjálm þegar þau hjóla. -
A-landsliðskona á Krókinn
Á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls má sjá að liðið hefur samið við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili. Kolbrún María kemur til Tindastóls eftir að hafa leikið í Þýskalandi, hún á að baki glæsil...
Ljósmyndavefur Feykis
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Nýr björgunarbátur vígður
Haldið var upp á sjómannadaginn um helgina. Margir mis-munandi dagskrárliðir voru á Sauðárkróki, Skagaströnd og Hofsósi. Þegar dró að dagsskráarlokum á bryggjunni á Hofsósi vígði sr. Karl V. Matthíasson nýjan björgunarbát sem fékk nafnið stormur og er í eigu Björgunarsveitarinnar Grettir en báturinn er mikil styrking fyrir sveitina. -
Finnur og Björn heiðraðir á sjómannadaginn
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðilegur síðastliðinn sunnudag og þá tíðkast meðal annars að heiðra menn fyrir farsælan feril. Tveir góðir félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna voru heiðraðir í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi á sunnudaginn. Það voru þeir Finnur Sigurbjörnsson skipstjóri á Múlabergi og Björn Jónasson skipstjóri á Málmey. -
Unnið við skólalóð Grunnskóla Húnaþings vestra
Í gær hófust framkvæmdir á skólalóð Grunnskólans Húnaþings vestra á Hvammstanga. Verkið snýr að endurgerð lóðarinnar sunnan- og vesta við skólabygginguna en sett verða upp leiktæki og gengið frá yfirborði lóðar, sett upp lýsing, gróður, bekkir og borð. -
Kíkja í heimsókn á BIRTU völlinn
Kormákur/Hvöt heimsækir Hauka á Ásvöllum klukkan 19:15 í kvöld, í sjöundu umferð 2. deildar karla. Leikurinn fer fram á BIRTU vellinum í Hafnafirði. Ætli Húnvetningar geti haldið súperframmistöðunni áfram eftir leik seinustu umferðar þar sem þeir prjónuðu yfir andstæðinga sína í 7-1 sigri. -
Fyrstu mánuðirnir munu verða krefjandi
Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir á Skagaströnd hafa myndað saman meirihluta en Feykir sagði í gær frá fyrsta sveitarstjórnarfundi að afloknum kosningum. Í frétt á vef Skagastrandar segir að ný sveitarstjórn hafi því tekið til starfa og framundan séu fjölmörg spennandi verkefni sem fela í sér bæði tækifæri og áskoranir sem miða að því að efla þjónustu við íbúa og styrkja samfélagið okkar til framtíðar. -
Tindastólsmenn fá nágranna Fjallabyggðar í heimsókn
Lið Tindastóls fær til sín nágranna KF úr Fjallabyggð í heimsókn í dag, miðvikudaginn 10. júní. Stólarnir hafa farið frábærlega af stað enda eru þeir eina taplausa liðið í deildinni eftir sex umferðir. Leikurinn fer fram á Sauðárkróksvelli og hefst kl. 19:15.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira -
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Myndi frekar tromma í sturtunni ef það væri hægt / KALLI JÓNS
Lesa meiraKarl Jónsson, eða bara Kalli Jóns, ólst upp í syðri bænum á Sauðárkróki, nánar tiltekið á Hólaveginum og nágrenni. Hann býr nú heldur utar í bænum. Hljóðfærið hans Kalla eru trommur en hann lék reyndar á trompet í 5 ár. Hann er fæddur árið 1969.Myndi frekar tromma í sturtunni ef það væri hægt
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
19. júní kl. 14:00-18:00
Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum þann 19. júní!
Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka.
Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.
Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar er stefnt að því að ljúka endurbyggingu síðasta hússins, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.
Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem er til að veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða til að skoða húsin.
Kaffi, drykkjarföng og léttar veitingar verða í boði, stefnt er að því að lifandi tónlist létti okkur lundina og meðlimir í Pilsaþyt heiðri okkur með nærveru sinni.
Stefnt er að því að hefja dagskrá kl. 14.00 (með fyrirvara um breytingar) en nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Verið öll velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!
Rabb-a-babb
-
rabb-a-babb 43: Sigurjón Þórðar
Lesa meiraNafn: Sigurjón Þórðarson.
Árgangur: 1964.
Fjölskylduhagir: 3 börn Sif þórhall og Sigrúnu.
Starf / nám: Alþingismaður, líffræðingur.
Bifreið: Toyota Hilux, er til sölu.
Hestöfl: ?
Hvað er í deiglunni: Vinna með frábæru ...
