Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Finnur og Björn heiðraðir á sjómannadaginn
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðilegur síðastliðinn sunnudag og þá tíðkast meðal annars að heiðra menn fyrir farsælan feril. Tveir góðir félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna voru heiðraðir í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi á sunnudaginn. Það voru þeir Finnur Sigurbjörnsson skipstjóri á Múlabergi og Björn Jónasson skipstjóri á Málmey.
-
Unnið við skólalóð Grunnskóla Húnaþings vestra
Í gær hófust framkvæmdir á skólalóð Grunnskólans Húnaþings vestra á Hvammstanga. Verkið snýr að endurgerð lóðarinnar sunnan- og vesta við skólabygginguna en sett verða upp leiktæki og gengið frá yfirborði lóðar, sett upp lýsing, gróður, bekkir og borð. -
Kíkja í heimsókn á BIRTU völlinn
Kormákur/Hvöt heimsækir Hauka á Ásvöllum klukkan 19:15 í kvöld, í sjöundu umferð 2. deildar karla. Leikurinn fer fram á BIRTU vellinum í Hafnafirði. Ætli Húnvetningar geti haldið súperframmistöðunni áfram eftir leik seinustu umferðar þar sem þeir prjónuðu yfir andstæðinga sína í 7-1 sigri. -
-
-
Fyrstu mánuðirnir munu verða krefjandi
Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir á Skagaströnd hafa myndað saman meirihluta en Feykir sagði í gær frá fyrsta sveitarstjórnarfundi að afloknum kosningum. Í frétt á vef Skagastrandar segir að ný sveitarstjórn hafi því tekið til starfa og framundan séu fjölmörg spennandi verkefni sem fela í sér bæði tækifæri og áskoranir sem miða að því að efla þjónustu við íbúa og styrkja samfélagið okkar til framtíðar. -
Tindastólsmenn fá nágranna Fjallabyggðar í heimsókn
Lið Tindastóls fær til sín nágranna KF úr Fjallabyggð í heimsókn í dag, miðvikudaginn 10. júní. Stólarnir hafa farið frábærlega af stað enda eru þeir eina taplausa liðið í deildinni eftir sex umferðir. Leikurinn fer fram á Sauðárkróksvelli og hefst kl. 19:15.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Ragnheiður Erla er nýr oddviti Skagastrandar
Fundur var haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar í gær en þar var meðal annars kosning oddvita og varaoddvita sveitarfélagsins nú að loknum sveitarstjórnarkosningum. Lagt var til að Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, sem er efst á lista Samfylkingar og óháðra, yrði kjörin oddviti og var það samþykkt með fimm atkvæðum. Alls sitja fimm í sveitarstjórn Skagastrandar. -
Gallery Trefill verður með sveitamarkað 20. júní
Sigurlaug Guðmundsdóttir opnaði Gallery Trefill á seinasta ári og starfsemi þess gekk vel. Þar eru handprjónaðar vörur eftir hana, fleiri á Hofsósi og í nágrenninu. Galleríið er í litlu húsi við hliðina á gömlu skemmunum á Óslandi en hugmyndin er sú að hafa makaði í þeim samhliða galleríinu. Einnig er kominn söluvagn við hlið gallerísins svo hægt er að bjóða fólki upp á kaffi og meðlæti á pallinum fyrir utan á góðviðris dögum. -
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins. -
Stuð og stemning fram undan á Hofsósi
Bæjarhátíðin Hofsós heim mun standa yfir dagana 18.- 22. júní næstkomandi og hægt er að segja að nóg verði um að vera. Dagskráin er stútfull en í ár verður hægt að kíkja á markað í Höfðaborg, sjá sýningu hjá Brúðubílnum og skella sér í gusu í sánuvagni svo eitthvað sé nefnt. Hátíðin eins og hún er í dag hefur verið haldin síðan árið 2018 en bæjarhátíðir á Hofsósi er hægt að rekja til 1999 þegar haldið var upp á Jónsmessuhátíð. -
Sjómannadagsins var beðið með eftirvæntingu
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um síðustu helgi. Hér á Norðurlandi vestra fóru sveitarfélögin misjafnar leiðir í hátíðarhöldin. Þannig hafa Skagstrendingar þann háttinn á að þar eru standandi hátíð í fjóra daga, á Hofsósi og á Hvammstanga fagna sjómenn á sjómannadeginum en á Sauðárkróki er fagnað degi fyrr – mögulega af praktískum ástæðum. -
Arséne Wenger er mitt uppáhald | Eydís Ósk segir frá liðinu sínu
Eydís Ósk Indriðadóttir er með annan fótinn á Hvammstanga og hinn í Gröf á Vatnsnesi. Hún er kennari, bóndi, liðveitandi, ljósmyndari og björgunarsveitarkona í hjáverkum. Síðast en ekki síst er hún Arsenal-aðdáandi. Þar sem Nallarnir unnu sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 22 ár á dögunum þá var ekki úr vegi að plata Eydísi Ósk í að svara Liðinu mínu. Við byrjum á að fá hana til að grein fyrir sjálfri sér...
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira -
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Væri til í að gera aðra tilraun til að komast á tónleika með McCartney / RÖGGI VALBERGS
Lesa meiraÞað er Rögnvaldur S. Valbergsson organisti í Sauðárkrókskirkju sem svarar Tón-lystinni að þessu sinni. Röggi er fæddur 1956 og hefur víða komið við í tónlistinni í gegnum tíðina. Um hvert hljóðfærið hans sé segir Röggi: „Það er nú það, ætli ég þykist ekki helst vera orgelleikari , uppáhaldshljóðfæri er náttúrlega Hammond orgelið.“ Spurður um hver helstu afrek hans á tónlistarsviðinu séu segir hann af alþekktu lítillæti: „A, ja nú veit ég ekki, búinn að músisera víða og með mörgum. Kannski best að vera ekkert að gera upp á milli.“
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 248: Sólveig Birna
Lesa meiraÞað er Sólveig Birna Elísabetardóttir sem svarar Rabb-a-babbi í þetta skiptið. Hún er að nálgast þrítugt, er fædd árið 1997, er einhleyp en býr um þessar mundir á Akureyri. „Ég ólst upp meira og minna í Breiðholti en hef einnig búið í nokkur ár á Sauðárkróki. Mamma mín hét Elísabet Sóley Stefánsdóttir, dóttir Stebba á Gili og Ólínu dóttur Valda rak. Pabbi minn heitir Halldór Þorsteinns Gestsson og er skipstjóri á Drangey.
