Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Hæ Hó Jibbí Jei
Haldið verður upp á þjóðhátíðardag Íslendinga á morgun, 17. júní. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í þéttbýlunum og meðal annars mun Benedikt búálfur heimsækja bæði Blönduós og Sauðárkrók.
-
Heldri bílar aka yfir Héraðsvatnabrúna þann 17. júní
Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, er á morgun en það er fæðingardagur Jóns forseta Sigurðssonar. Í Skagafirði munu eigendur eldri og virðulegri bíla taka rúnt í tilefni dagsins líkt og gert hefur verið í áraraðir en að þessu sinni ætla fornbílaeigendur að koma við á gömlu brúnni yfir vesturós Héraðsvatna. Og tilefnið er ekki ónýtt, brúin er 100 ára um þessar mundir. -
Vinna við tvöföldun gagnavers á Blönduósi hafin
Vísir sagði frá því í gær að framkvæmdir væru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis á Blönduósi til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á vinnu allt að 200 manns á verktíma. Haft er eftir Guðmundi Hauki Jakobssyni oddvita sveitarstjórnar Húnabyggðar að á milli 30-40 ný varanleg störf verði til í héraðinu vegna gagnaversins. -
-
-
Magnús Barðdal hefur tekið við sem sveitarstjóri Skagafjarðar
„Það er vissulega mikil tilhlökkun að takast á við þetta nýja og spennandi verkefni. Það er mikill heiður að fá að setjast í sæti sveitarstjóra og margt sem þarf að læra. Ég treysti á öflugt starfsfólk sveitarfélagsins til að koma mér hratt og örugglega inn í verkefnin,“ sagði Magnús Barðdal Reynisson nýr sveitarstjóri Skagafjarðar aðspurðu um hvernig nýtt starf legðist í hann en fyrsti starfsdagur nýs sveitarstjóra var nú í gær. -
Inga og Rannveig áfram í vínrauðu
Stólastúlkurnar Inga Sólveig Sigurðardóttir og Rannveig Guðmundsdóttir framlengja við Tindastól og spila áfram með liðinu á næsta tímabili. Israel Martin, þjálfari kvenaliðs Tindastóls, lýsir yfir mikilli ánægju með að Inga og Rannveig hafi framlengt samninga sína við félagið. Hann segir það dýrmætt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu liðsins að halda kjarnanum frá síðustu tveimur tímabilum áfram.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Viðburðarstýrur Hofsós heim hlakka mikið til
Auður Björk og Vala Kristín eru viðburðarstýrur Hofsós heim, sem haldin verður dagana 18. – 22. júní í ár. Stelpurnar eru báðar uppaldnar í Skagafirði og hafa búið þar meiripart ævinnar. Þær hafa verið vinkonur síðan þær voru unglingar og sinna verkefni viðburðastýru saman. Auður býr í dag á Grindum í Deildardal með Rúnari Páli og þremur börnum. Vala býr á Hofsósi með Helga Hrannari og fimm börnum þeirra. Feykir hafði samband við Auði og Völu og fékk þær til þess að svara nokkrum skemmtilegum spurningum. -
Stólastrákarnir sóttu sigur en Kormákur/Hvöt og Stólastelpur máttu þola töp
Allir þrír meistaraflokkarnir spiluðu um helgina og aðeins Stólastrákarnir sóttu stig en Stólastelpur og Kormákur/Hvöt máttu þola töp. Stólastrákarnir eru því enn efstir með 19 stig en Kormákur/Hvöt datt niður um þrjú sæti og eru núna í sjöunda sæti með 11 stig. Stólastelpurnar leita enn að fyrsta sigrinum og eru á botni Lengjudeildarinnar. -
Frönsk gúllassúpa og sunnudagsbrauð | Matgæðingar Feykis
Matgæðingar vikunnar í tbl. 4 voru Ólafur Atli Sindrason og Helga Sigurðardóttir en þau búa á Grófargili og eru bæði kennarar í Varmahlíðarskóla. Óli, eins og hann er oftast kallaður, er alinn upp á Breið í gamla Lýtingsstaðahreppi en Grófargil er æskuheimili Helgu. -
Fagnaði með þeim fréttum að hann væri öklabrotinn
Helgi Freyr Guðmundsson, tíundabekkingur í Grunnskóla Húnaþings vestra, keppti fyrir hönd skólans í Skólahreysti en svo kom til að hann öklabrotnaði í upphitun og gat því ekki keppt í úrslitunum, hann átti að keppa í hraðaþraut. Helgi býr á Enniskoti í Húnaþingi vestra með mömmu sinni Þóru Björg Kristmundsdóttur ásamt Eggert og tveimur bræðrum þeim Kristjáni og Arnari. Pabbi hans, Guðmundur Helgi Gíslason býr á Sauðárkróki ásamt Írisi Elefsen og bræðrum Helga, Sigurði og Hilmari. Hann keppti í fyrsta skipti í Skólahreysti í ár, en hvað er betra en að enda á toppnum? Feykir hafði samband við Helga og fékk hann til þess að segja frá Skólahreysti upplifuninni sinni. -
Matarmikil súpa og kartöfluterta | Matgæðingur Feykis
Matgæðingur í þriðja tbl. Feykis á þessu fallega ári var Kristey Rut Konráðsdóttir. Kristey er fædd og uppalin á Sauðárkróki og vinnur sem stuðningsfulltrúi í 5. bekk í Árskóla. Einnig sækir hún fjarnám í HÍ þennan veturinn í farsæld barna og er með BS í sálfræði. Kristey þekkja eflaust margir eftir að hafa farið á leiksýningar í Bifröst en hún hefur verið viðriðin Leikfélagi Sauðárkróks síðustu árin og situr í varastjórn LS eins og staðan er í dag. -
Maturinn, vínið, sagan og sólin eru alveg dásamleg
Síðast heimsótti Dagur í lífi brottfluttra hana Þórunni Ingu úr Víðidalnum sem býr með fjölskyldu sinni í Dúbaí. Við höldum okkur á heitum slóðum og tökum flugið frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og beinustu leið til Barselóna í Katalóníu á Spáni. Þar býr Króksarinn Sóley Björk Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur og vínfræðingur, ásamt kærastanum sínum, Enric Quirant Campas, sem er lögfræðingur. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Sóleyju og frásagnargleðin í góðu lagi.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Inga og Rannveig áfram í vínrauðu
Stólastúlkurnar Inga Sólveig Sigurðardóttir og Rannveig Guðmundsdóttir framlengja við Tindastól og spila áfram með liðinu á næsta tímabili. Israel Martin, þjálfari kvenaliðs Tindastóls, lýsir yfir mikilli ánægju með að Inga og Rannveig hafi framlengt samninga sína við félagið. Hann segir það dýrmætt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu liðsins að halda kjarnanum frá síðustu tveimur tímabilum áfram.Meira -
Stórasta stjarnan | Leiðari 22. tölublaðs Feykis
Það var víða mikil gleði um liðna helgi enda sjómannadagur og Prjónagleði og ég veit ekki hvað. Þá var mikil gleði í tilefni af því að Bubbi Morthens varð sjötugur og því tilefni til stórtónleika.Meira -
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Hlustar á allt frá 16 aldar madrigölum til þungarokks / HELGA RÓS
Lesa meiraHelgu Rós Indriðadóttur frá Hvíteyrum í hinum aldna Lýtingsstaðahreppi ættu nú flestir tónlistarunnendur að kannast við. Helga Rós, sem er sprenglærð söngkona, er fædd 1969, dóttir Rósu og Indriða á Hvíteyrum, býli sem stendur undir Mælifellshnjúknum fagra. Hún kennir söng á eigin vegum og er með barnakór í Tónadansi, nýstofnaðri listasmiðju í Skagafirði. Hún stjórnar tveimur kórum; Skagfirska kammerkórnum og kvennakórnum Sóldísi.. Hljóðfæri Helgu Rósar eru röddin og píanóið.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 99: Anna Pála
Lesa meiraNafn: Anna Pála Gísladóttir.
Árgangur: 1972.
Fjölskylduhagir: Ég bý með sandkassaástinni minni honum Eyjólfi og á með honum fjóra stráka, Hólmar Örn, Trausta Má, Sverri Rafn og Kára Rafnar (og Húna hund). Trausti Már og Kári ...
