Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Eins og má sjá á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur verið gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins.
Kormákur/Hvöt heimsótti Hauka á Ásvelli í gærkvöldi. Fyrir leik voru liðin í fyrsta og fjórða sæti 2. deildar en eftir leikinn duttu Kormákur/Hvöt niður um eitt sæti og sitja í því fimmta. Leikurinn endaði 2-2 og fá því bæði lið eitt stig.
Ný sveitarstjórn Húnabyggða kom saman þann 9. júní í fyrsta sinn eftir sveitarstjórnarkosningarnar þar sem listi Sjálfstæðismanna og óháðra náði hreinum meirihluta. Á fundinum fór fram kjör fulltrúa í nefndir og ráð. Guðmundur Haukur Jakobsson oddviti D-lista verður áfram forseti sveitarstjórnar en Ragnhildur Haraldsdóttir, sem skipaði fimmta sæti D-lista, verður varaforseti sveitarstjórnar.
Í gærkvöldi fór fram viðureign Tindastóls og KF á Sauðárkróksvelli, þar sem Fjallabyggð hafði betur en leikurinn endaði 1-3. Þetta er þá fyrsta tap Tindastóls í deildinni á tímabilinu en þeir deila nú fyrstu tveim sætunum með Víði úr Garði. Stólarnir eru þó enn efstir vegna betri markatölu.
Það er eitt og annað sem fær athygli fjölmiðla. Þannig var umfjöllun á DV.is um helgina þar sem sagt var frá tíu ódýrustu einbýlishúsunum á Íslandi í dag en fram kemur að þau ódýrustu kosta á bilinu 11-30 milljónir. Það sem kemur kannski á óvart er að tvö af húsunum í þessari upptalningu eru á Sauðárkróki.
Dagana 26.–28. júní næstkomandi verður HIP Fest, alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga, haldin í fimmta sinn. Á undanförnum árum hefur hátíðin vakið athygli bæði innanlands og utan fyrir metnaðarfulla dagskrá, alþjóðlega vinkilinn og einstaka nálægð milli listamanna og gesta.
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.
Í gær, þriðjudaginn 9. júní, heimsótti lögreglan á Norðurlandi vestra leikskólann Ásgarð á Hvammstanga. Lögreglan skoðaði hjól barnanna og ræddi við þau um mikilvægi þess að hjólin séu í góðu lagi, sérstaklega að bremsurnar virki sem skyldi. Einnig var lögð áhersla á að börnin noti alltaf hjálm þegar þau hjóla.
Á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls má sjá að liðið hefur samið við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili. Kolbrún María kemur til Tindastóls eftir að hafa leikið í Þýskalandi, hún á að baki glæsil...
Gaman var á sjómannadagshelginni á Hofsósi, Hvammstanga, Sauðárkróki og Skagaströnd en það má sjá á myndunum sem fylgja fréttinni. Stór fjagradaga hátíð var haldin á Skagaströnd sem lauk með Sjómannadagshalupi en á Hvammstanga hélf Félag eldri borgara í Húnaingi vestra kaffi til heiðurs sjómanna.
Haldið var upp á sjómannadaginn um helgina. Margir mis-munandi dagskrárliðir voru á Sauðárkróki, Skagaströnd og Hofsósi. Þegar dró að dagsskráarlokum á bryggjunni á Hofsósi vígði sr. Karl V. Matthíasson nýjan björgunarbát sem fékk nafnið stormur og er í eigu Björgunarsveitarinnar Grettir en báturinn er mikil styrking fyrir sveitina.
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Eins og má sjá á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur verið gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins.
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Það er Kristján Reynir Kristjánsson sem spreytir sig á Tón-lystinni í þetta skiptið. Hann er fæddur 1992 og með tónlistina í genunum en foreldrar hans eru Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir og Kristján Kristjánsson. Líkt og hjá gamla þá eru trommurnar hans hljóðfæri. „Ég fæddist á Akureyri og ólst upp í Skagafirðinum. Fjölskyldan flutti suður í nokkur ár, komum aftur norður árið 2007 og hér hef ég verið að mestu leyti síðan þá.“
Austan Vatna bjóða uppá hátíðarkaffi í tilefni þjóðhátíðardagsins, í mötuneyti Háskólans á Hólum frá kl 14-18
Allir velkomnir - hlökkum til að sjá ykkur
Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum þann 19. júní!
Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka.
Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.
Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar er stefnt að því að ljúka endurbyggingu síðasta hússins, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.
Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem er til að veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða til að skoða húsin.
Kaffi, drykkjarföng og léttar veitingar verða í boði, stefnt er að því að lifandi tónlist létti okkur lundina og meðlimir í Pilsaþyt heiðri okkur með nærveru sinni.
Stefnt er að því að hefja dagskrá kl. 14.00 (með fyrirvara um breytingar) en nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Verið öll velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!