Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Matarmikil súpa og kartöfluterta | Matgæðingur Feykis
Matgæðingur í þriðja tbl. Feykis á þessu fallega ári var Kristey Rut Konráðsdóttir. Kristey er fædd og uppalin á Sauðárkróki og vinnur sem stuðningsfulltrúi í 5. bekk í Árskóla. Einnig sækir hún fjarnám í HÍ þennan veturinn í farsæld barna og er með BS í sálfræði. Kristey þekkja eflaust margir eftir að hafa farið á leiksýningar í Bifröst en hún hefur verið viðriðin Leikfélagi Sauðárkróks síðustu árin og situr í varastjórn LS eins og staðan er í dag.
-
Maturinn, vínið, sagan og sólin eru alveg dásamleg
Síðast heimsótti Dagur í lífi brottfluttra hana Þórunni Ingu úr Víðidalnum sem býr með fjölskyldu sinni í Dúbaí. Við höldum okkur á heitum slóðum og tökum flugið frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og beinustu leið til Barselóna í Katalóníu á Spáni. Þar býr Króksarinn Sóley Björk Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur og vínfræðingur, ásamt kærastanum sínum, Enric Quirant Campas, sem er lögfræðingur. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Sóleyju og frásagnargleðin í góðu lagi. -
„Það er klárlega meiri stemning í úrslitunum" sagði Jóhanna um úrslitin í Skólahreysti
Jóhanna Guðrún Jóhannsdóttir er dóttir þeirra Jóhanns Ragnarssonar og Jónu Guðrúnar Ármannsdóttur og hún er frá bænum Laxárdal í Hrútafirði. Jóhanna er hins vegar líka sigurvegari en hún vann Skólahreysti með liði Grunnskóla Húnaþings vestra í maí sl. Líkt og tvö af hennar fimm systkinum keppti hún fyrir skólann. Jóhanna keppti í armbeygjum og hreyrstigreip sem hún gerði vel. Feykir hafði samband við Jóhönnu og fékk hana í stutt spjall. -
-
-
Stórasta stjarnan | Leiðari 22. tölublaðs Feykis
Það var víða mikil gleði um liðna helgi enda sjómannadagur og Prjónagleði og ég veit ekki hvað. Þá var mikil gleði í tilefni af því að Bubbi Morthens varð sjötugur og því tilefni til stórtónleika. -
Stólastelpur frumsýna nýjan leikmann en Kormákur/Hvöt og Tindastólsmenn spila heimaleiki
Það er fótboltahelgi fram undan en ekki er nóg að yngri flokka mót er bæði á Selfossi og í Vestmannaeyjum þá eru allir meistaraflokkar Norðurlands vestra að spila um helgina. Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastól heimsækir HK á morgun, laugardag 13. júní en Kormákur/Hvöt og meistaraflokkur karla spila bæði heimaleiki á sunnudaginn 14. júní.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Stinningskaldi í dag en útlit fyrir ágætis veður um helgina
Það er stinningskaldi að norðan á Króknum í dag, hitinn slagar í tíu gráðurnar en úti fyrir grillir í gráan þokubakka. Það lægir þegar líður á kvöldið og á morgun, laugardag, er gert ráð fyrir björtu veðri og stilltu og hitinn hoppar yfir í tveggja stafa tölu. Skaplegt veður verður á sunnudaginn, bjart framan af degi en þykknar upp en bjartara vestan til á Norðurlandi vestra. -
Brautskráning nemenda í Fiskeldis- og fiskalíffræði og Ferðamálafræði
Alls voru 20 kandidatar brautskráðir frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild og Ferðamáladeild við hátíðlega athöfn á Hólum þann 5. júní. Við sama tilefni var þess minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir hófu nám í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum en það nám lagði grunninn að því BS námi sem nú er í boði í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum. -
Björnis brunabangsi heimsækir Krókinn eftir viku
Gaman er að segja frá því að Björnis brunabangsi ætlar að kíkja í heimsókn til Skagafjarðar dagana 19. og 20. júní nk. Björnis hefur undanfarið verið öllum slökkviliðum landsins til aðstoðar við fræðslu og forvarnarstarf, einkum þegar kemur að fræðslu fyrir yngstu kynslóðina. -
Krúttlegasta hjólamótið snýr aftur í Kjarnaskóg á sunnudaginn
Hjólreiðafélag Akureyrar, Akureyrardætur og Krónan standa á ný fyrir Krónuhjólamótinu næstkomandi sunnudag. Hjólamótið er ætlað börnum á aldrinum 2 til 12 ára og verður haldið á Birkivöllum í Kjarnaskógi. Skráning er hafin og eru öll börn velkomin til þátttöku. -
Unnur Valborg áfram sveitarstjóri í Húnaþingi vestra
Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra fór fram seinni partinn í gær og þar var kosið í nefndir og ráð. Á dögunum var tilkynnt um að Framsókn og aðrir framfarasinnar og Sjálfstæðismenn og óháðir hafi komist að samkomulagi um meirihlutamyndun. Á fundinum var borin upp tillaga þess efnis að Sigurður Líndal Þórisson B-lista yrði kjörinn oddviti sveitarstjórnar og Örn Arnarson D-lista varaoddviti. Var það samþykkt með fjórum atkvæðum en þrír fulltrúar N-lista greiddu atkvæði á móti tillögunni. -
Stefna á að auka þjónustuna og bæta við sig verkefnum
Þeir sem keyra um Krókinn í leit að nýjum og spennandi vísum að framkvæmdum hafa eflaust tekið eftir því að sunnan við Vélaverkstæði KS er búið að taka grunn og framkvæmdir hafnar. Þar stendur nefnilega til að byggja við vélaverkstæðið og er víst löngu kominn tími til að sögn Hjartar Elefsen sem tók við sem forstöðumaður í ársbyrjun 2024. Hjörtur hóf störf á vélaverkstæðinu árið 1999 og tók við verkstjórn þar sjö árum síðar. Feykir forvitnaðist aðeins um Hjört og framkvæmdirnar framundan.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Stórasta stjarnan | Leiðari 22. tölublaðs Feykis
Það var víða mikil gleði um liðna helgi enda sjómannadagur og Prjónagleði og ég veit ekki hvað. Þá var mikil gleði í tilefni af því að Bubbi Morthens varð sjötugur og því tilefni til stórtónleika.Meira -
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.Meira -
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Væri til í útitónleika með Billie Eilish á Svalbarða | ANNA KRISTÍN
Lesa meiraHún er alin upp á Brandsstöðum í Blöndudal, dóttir Jóhönnu Helgu frá Móbergi í Langadal og Brynjólfs frá Austurhlíð í Blöndudal. Hún er fædd árið 1996 býr á Brekkunni á Blönduósi með sínum ekta manni Gunnari Inga Jósepssyni og heitir Anna Kristín Brynjólfsdóttir. Aðal hljóðfæri Önnu er röddin, segist vera sígólandi en á engu að síður að baki níu ára nám á píanó og notar þetta tvennt yfirleitt saman.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 181: Alexandra sveitarstjóri
Lesa meiraNafn: Alexandra Jóhannesdóttir.
Starf / nám: Sveitarstjóri á Skagaströnd / Lögfræðingur.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Mjög líklega Gullbylgjuna.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Ég er mjög óþolinmóð og óhandlagin sem fer illa saman. Enda get ég aldrei hengt neitt upp eða lagað á heimilinu nema eyðileggja eitthvað í leiðinni.
