Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Guðmundur Haukur er áfram forseti sveitarstjórnar í Húnabyggð
Ný sveitarstjórn Húnabyggða kom saman þann 9. júní í fyrsta sinn eftir sveitarstjórnarkosningarnar þar sem listi Sjálfstæðismanna og óháðra náði hreinum meirihluta. Á fundinum fór fram kjör fulltrúa í nefndir og ráð. Guðmundur Haukur Jakobsson oddviti D-lista verður áfram forseti sveitarstjórnar en Ragnhildur Haraldsdóttir, sem skipaði fimmta sæti D-lista, verður varaforseti sveitarstjórnar.
-
Fyrsta tap Tindastólsmanna
Í gærkvöldi fór fram viðureign Tindastóls og KF á Sauðárkróksvelli, þar sem Fjallabyggð hafði betur en leikurinn endaði 1-3. Þetta er þá fyrsta tap Tindastóls í deildinni á tímabilinu en þeir deila nú fyrstu tveim sætunum með Víði úr Garði. Stólarnir eru þó enn efstir vegna betri markatölu. -
Tvö hús á Króknum í hópi ódýrustu einbýlishúsa landsins
Það er eitt og annað sem fær athygli fjölmiðla. Þannig var umfjöllun á DV.is um helgina þar sem sagt var frá tíu ódýrustu einbýlishúsunum á Íslandi í dag en fram kemur að þau ódýrustu kosta á bilinu 11-30 milljónir. Það sem kemur kannski á óvart er að tvö af húsunum í þessari upptalningu eru á Sauðárkróki. -
-
-
HIP Fest 2026: Fimmta alþjóðlega brúðulistahátíðin á Hvammstanga
Dagana 26.–28. júní næstkomandi verður HIP Fest, alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga, haldin í fimmta sinn. Á undanförnum árum hefur hátíðin vakið athygli bæði innanlands og utan fyrir metnaðarfulla dagskrá, alþjóðlega vinkilinn og einstaka nálægð milli listamanna og gesta. -
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.
Ljósmyndavefur Feykis
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt. -
Fóru yfir mikilvægi hjálmsins
Í gær, þriðjudaginn 9. júní, heimsótti lögreglan á Norðurlandi vestra leikskólann Ásgarð á Hvammstanga. Lögreglan skoðaði hjól barnanna og ræddi við þau um mikilvægi þess að hjólin séu í góðu lagi, sérstaklega að bremsurnar virki sem skyldi. Einnig var lögð áhersla á að börnin noti alltaf hjálm þegar þau hjóla. -
A-landsliðskona á Krókinn
Á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls má sjá að liðið hefur samið við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili. Kolbrún María kemur til Tindastóls eftir að hafa leikið í Þýskalandi, hún á að baki glæsil... -
Sjómannadagshelgin í myndum
Gaman var á sjómannadagshelginni á Hofsósi, Hvammstanga, Sauðárkróki og Skagaströnd en það má sjá á myndunum sem fylgja fréttinni. Stór fjagradaga hátíð var haldin á Skagaströnd sem lauk með Sjómannadagshalupi en á Hvammstanga hélf Félag eldri borgara í Húnaingi vestra kaffi til heiðurs sjómanna. -
Nýr björgunarbátur vígður
Haldið var upp á sjómannadaginn um helgina. Margir mis-munandi dagskrárliðir voru á Sauðárkróki, Skagaströnd og Hofsósi. Þegar dró að dagsskráarlokum á bryggjunni á Hofsósi vígði sr. Karl V. Matthíasson nýjan björgunarbát sem fékk nafnið stormur og er í eigu Björgunarsveitarinnar Grettir en báturinn er mikil styrking fyrir sveitina. -
Finnur og Björn heiðraðir á sjómannadaginn
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðilegur síðastliðinn sunnudag og þá tíðkast meðal annars að heiðra menn fyrir farsælan feril. Tveir góðir félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna voru heiðraðir í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi á sunnudaginn. Það voru þeir Finnur Sigurbjörnsson skipstjóri á Múlabergi og Björn Jónasson skipstjóri á Málmey.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.Meira -
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira -
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
„Það væri frekar dapurt líf ef ekki væri tónlist og söngur“ | KOLBRÚN GRÉTARS
Lesa meiraÞað er Kolbrún Erla Grétarsdóttir á Úlfsstöðum í Blönduhlíð sem svarar Tón-lystinni að þessu sinni. Hún segist vera af hinum óstýriláta 1975 árgangi, „... sennilega eftirminnilegasti árgangur Varmahlíðarskóla þó ég segi sjálf frá. Kolbrún er dóttir Grétars Geirssonar frá Brekkukoti og Jónínu Hjaltadóttur frá Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal. „Alin upp á Hólum í Hjaltadal – í dalnum sem Guð skapaði,“ bætir hún við.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
19. júní kl. 14:00-18:00
Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum þann 19. júní!
Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka.
Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.
Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar er stefnt að því að ljúka endurbyggingu síðasta hússins, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.
Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem er til að veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða til að skoða húsin.
Kaffi, drykkjarföng og léttar veitingar verða í boði, stefnt er að því að lifandi tónlist létti okkur lundina og meðlimir í Pilsaþyt heiðri okkur með nærveru sinni.
Stefnt er að því að hefja dagskrá kl. 14.00 (með fyrirvara um breytingar) en nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Verið öll velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!
Rabb-a-babb
-
rabb-a-babb 21: Harpa Kristins
Lesa meiraNafn: Svanhildur Harpa Kristinsdóttir.
Árgangur: 1969.
Fjölskylduhagir: Í sambúð með Þorgilsi Heiðari Pálssyni og eigum við fjögur börn. Fanney Birta 8 ára, Sólrún Björg 12 ára, Birgir Ingvar 17 ára og Jóhannes Veigar 18 á...
