Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Ísak Wíum í þjálfarateymi Tindastóls
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Eins og má sjá á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur verið gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins.
-
Nældu sér í stig gegn toppliðinu
Kormákur/Hvöt heimsótti Hauka á Ásvelli í gærkvöldi. Fyrir leik voru liðin í fyrsta og fjórða sæti 2. deildar en eftir leikinn duttu Kormákur/Hvöt niður um eitt sæti og sitja í því fimmta. Leikurinn endaði 2-2 og fá því bæði lið eitt stig. -
Guðmundur Haukur er áfram forseti sveitarstjórnar í Húnabyggð
Ný sveitarstjórn Húnabyggða kom saman þann 9. júní í fyrsta sinn eftir sveitarstjórnarkosningarnar þar sem listi Sjálfstæðismanna og óháðra náði hreinum meirihluta. Á fundinum fór fram kjör fulltrúa í nefndir og ráð. Guðmundur Haukur Jakobsson oddviti D-lista verður áfram forseti sveitarstjórnar en Ragnhildur Haraldsdóttir, sem skipaði fimmta sæti D-lista, verður varaforseti sveitarstjórnar. -
-
-
Fyrsta tap Tindastólsmanna
Í gærkvöldi fór fram viðureign Tindastóls og KF á Sauðárkróksvelli, þar sem Fjallabyggð hafði betur en leikurinn endaði 1-3. Þetta er þá fyrsta tap Tindastóls í deildinni á tímabilinu en þeir deila nú fyrstu tveim sætunum með Víði úr Garði. Stólarnir eru þó enn efstir vegna betri markatölu. -
Tvö hús á Króknum í hópi ódýrustu einbýlishúsa landsins
Það er eitt og annað sem fær athygli fjölmiðla. Þannig var umfjöllun á DV.is um helgina þar sem sagt var frá tíu ódýrustu einbýlishúsunum á Íslandi í dag en fram kemur að þau ódýrustu kosta á bilinu 11-30 milljónir. Það sem kemur kannski á óvart er að tvö af húsunum í þessari upptalningu eru á Sauðárkróki.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
HIP Fest 2026: Fimmta alþjóðlega brúðulistahátíðin á Hvammstanga
Dagana 26.–28. júní næstkomandi verður HIP Fest, alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga, haldin í fimmta sinn. Á undanförnum árum hefur hátíðin vakið athygli bæði innanlands og utan fyrir metnaðarfulla dagskrá, alþjóðlega vinkilinn og einstaka nálægð milli listamanna og gesta. -
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt. -
Fóru yfir mikilvægi hjálmsins
Í gær, þriðjudaginn 9. júní, heimsótti lögreglan á Norðurlandi vestra leikskólann Ásgarð á Hvammstanga. Lögreglan skoðaði hjól barnanna og ræddi við þau um mikilvægi þess að hjólin séu í góðu lagi, sérstaklega að bremsurnar virki sem skyldi. Einnig var lögð áhersla á að börnin noti alltaf hjálm þegar þau hjóla. -
A-landsliðskona á Krókinn
Á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls má sjá að liðið hefur samið við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili. Kolbrún María kemur til Tindastóls eftir að hafa leikið í Þýskalandi, hún á að baki glæsil... -
Sjómannadagshelgin í myndum
Gaman var á sjómannadagshelginni á Hofsósi, Hvammstanga, Sauðárkróki og Skagaströnd en það má sjá á myndunum sem fylgja fréttinni. Stór fjagradaga hátíð var haldin á Skagaströnd sem lauk með Sjómannadagshalupi en á Hvammstanga hélf Félag eldri borgara í Húnaingi vestra kaffi til heiðurs sjómanna. -
Nýr björgunarbátur vígður
Haldið var upp á sjómannadaginn um helgina. Margir mis-munandi dagskrárliðir voru á Sauðárkróki, Skagaströnd og Hofsósi. Þegar dró að dagsskráarlokum á bryggjunni á Hofsósi vígði sr. Karl V. Matthíasson nýjan björgunarbát sem fékk nafnið stormur og er í eigu Björgunarsveitarinnar Grettir en báturinn er mikil styrking fyrir sveitina.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Ísak Wíum í þjálfarateymi Tindastóls
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Eins og má sjá á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur verið gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins.Meira -
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.Meira -
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Maria Callas og Norah Jones notaðar til að svæfa / SÓLVEIG ERLA
Lesa meiraTón-lystin hefur áður tekið fyrir tvær dömur í hljómsveitinni Skandal, þær Ingu Suska frá Blönduósi og Sóleyju Sif frá Skagaströnd, en nú er komið að þriðja og síðasta Norðvestlendingnum í þessari efnilegu fimm stúlkna hljómsveit. Röðin er því komin að Sólveigu Erlu Baldvinsdóttur frá Tjörn í Skagabyggð að tækla Tón-lystina en hún er fædd árið 2006, spilar á þverflautu og stundar nám við Menntaskólann á Akureyri líkt og aðrir meðlimir Skandals.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
rabb-a-babb 41: Svanhildur
Lesa meiraNafn: Svanhildur Guðmundsdóttir.
Árgangur: 1964.
Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow? Það eru Brúsi og Gwyneth þau klikka ekki!
Starf / nám: Forstöðumaður hjá Íbúðalánasjóði / viðskiptafræðingur .
Bifreið: T...
