Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Brautskráning nemenda í Fiskeldis- og fiskalíffræði og Ferðamálafræði
Alls voru 20 kandidatar brautskráðir frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild og Ferðamáladeild við hátíðlega athöfn á Hólum þann 5. júní. Við sama tilefni var þess minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir hófu nám í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum en það nám lagði grunninn að því BS námi sem nú er í boði í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum.
-
Björnis brunabangsi heimsækir Krókinn eftir viku
Gaman er að segja frá því að Björnis brunabangsi ætlar að kíkja í heimsókn til Skagafjarðar dagana 19. og 20. júní nk. Björnis hefur undanfarið verið öllum slökkviliðum landsins til aðstoðar við fræðslu og forvarnarstarf, einkum þegar kemur að fræðslu fyrir yngstu kynslóðina. -
Krúttlegasta hjólamótið snýr aftur í Kjarnaskóg á sunnudaginn
Hjólreiðafélag Akureyrar, Akureyrardætur og Krónan standa á ný fyrir Krónuhjólamótinu næstkomandi sunnudag. Hjólamótið er ætlað börnum á aldrinum 2 til 12 ára og verður haldið á Birkivöllum í Kjarnaskógi. Skráning er hafin og eru öll börn velkomin til þátttöku. -
-
-
Unnur Valborg áfram sveitarstjóri í Húnaþingi vestra
Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra fór fram seinni partinn í gær og þar var kosið í nefndir og ráð. Á dögunum var tilkynnt um að Framsókn og aðrir framfarasinnar og Sjálfstæðismenn og óháðir hafi komist að samkomulagi um meirihlutamyndun. Á fundinum var borin upp tillaga þess efnis að Sigurður Líndal Þórisson B-lista yrði kjörinn oddviti sveitarstjórnar og Örn Arnarson D-lista varaoddviti. Var það samþykkt með fjórum atkvæðum en þrír fulltrúar N-lista greiddu atkvæði á móti tillögunni. -
Stefna á að auka þjónustuna og bæta við sig verkefnum
Þeir sem keyra um Krókinn í leit að nýjum og spennandi vísum að framkvæmdum hafa eflaust tekið eftir því að sunnan við Vélaverkstæði KS er búið að taka grunn og framkvæmdir hafnar. Þar stendur nefnilega til að byggja við vélaverkstæðið og er víst löngu kominn tími til að sögn Hjartar Elefsen sem tók við sem forstöðumaður í ársbyrjun 2024. Hjörtur hóf störf á vélaverkstæðinu árið 1999 og tók við verkstjórn þar sjö árum síðar. Feykir forvitnaðist aðeins um Hjört og framkvæmdirnar framundan.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Hinsegin dagar í Skagafirði
Í Skagafirði verður haldið upp á hinsegin daga. Hátíðin mun standa yfir frá 10.-15. ágúst. Eins og kemur fram á heimasíðu Skagafjarðar er markmið hátíðarinnar að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. -
Ísak Wíum í þjálfarateymi Tindastóls
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Eins og má sjá á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur verið gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins. -
Nældu sér í stig gegn toppliðinu
Kormákur/Hvöt heimsótti Hauka á Ásvelli í gærkvöldi. Fyrir leik voru liðin í fyrsta og fjórða sæti 2. deildar en eftir leikinn duttu Kormákur/Hvöt niður um eitt sæti og sitja í því fimmta. Leikurinn endaði 2-2 og fá því bæði lið eitt stig. -
Guðmundur Haukur er áfram forseti sveitarstjórnar í Húnabyggð
Ný sveitarstjórn Húnabyggða kom saman þann 9. júní í fyrsta sinn eftir sveitarstjórnarkosningarnar þar sem listi Sjálfstæðismanna og óháðra náði hreinum meirihluta. Á fundinum fór fram kjör fulltrúa í nefndir og ráð. Guðmundur Haukur Jakobsson oddviti D-lista verður áfram forseti sveitarstjórnar en Ragnhildur Haraldsdóttir, sem skipaði fimmta sæti D-lista, verður varaforseti sveitarstjórnar. -
Fyrsta tap Tindastólsmanna
Í gærkvöldi fór fram viðureign Tindastóls og KF á Sauðárkróksvelli, þar sem Fjallabyggð hafði betur en leikurinn endaði 1-3. Þetta er þá fyrsta tap Tindastóls í deildinni á tímabilinu en þeir deila nú fyrstu tveim sætunum með Víði úr Garði. Stólarnir eru þó enn efstir vegna betri markatölu. -
Tvö hús á Króknum í hópi ódýrustu einbýlishúsa landsins
Það er eitt og annað sem fær athygli fjölmiðla. Þannig var umfjöllun á DV.is um helgina þar sem sagt var frá tíu ódýrustu einbýlishúsunum á Íslandi í dag en fram kemur að þau ódýrustu kosta á bilinu 11-30 milljónir. Það sem kemur kannski á óvart er að tvö af húsunum í þessari upptalningu eru á Sauðárkróki.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Krúttlegasta hjólamótið snýr aftur í Kjarnaskóg á sunnudaginn
Hjólreiðafélag Akureyrar, Akureyrardætur og Krónan standa á ný fyrir Krónuhjólamótinu næstkomandi sunnudag. Hjólamótið er ætlað börnum á aldrinum 2 til 12 ára og verður haldið á Birkivöllum í Kjarnaskógi. Skráning er hafin og eru öll börn velkomin til þátttöku.Meira -
Ísak Wíum í þjálfarateymi Tindastóls
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Eins og má sjá á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur verið gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins.Meira -
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
„Er ekkert að festast í fortíðinni“ / INGVI HRANNAR
Lesa meiraIngvi Hrannar Ómarsson, kennari, er fæddur árið 1986, alinn upp á Króknum og sonur Maríu Bjarkar Ingvadóttur og Ómars Braga Stefánssonar. Ingvi Hrannar lærði á blokkflautu eins og svo margir en spurður um helstu tónlistarafrek segist hann hafa verið bjartasta vonin í Tónlistarskóla Skagafjarðar vorið 1992. „Reyndar held ég að það hafi ekki verið formleg kosning en ég var að verða mjög frambærilegur á blokkflautuna og hefði líklega átt að halda áfram á þeirri braut,“ segir Ingvi Hrannar fjallbrattur.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 127: Sigrún Fossberg
Lesa meiraNafn: Sigrún Fossberg Arnardóttir.
Árgangur: 1975 eða 1875, er ekki viss.
Fjölskylduhagir: Gift honum Magga mínum í bráðum 25 ár og eigum við 3 afleggjara þau Sigurvin Örn (20) , Kristrúnu Maríu (17) og Halldóru Hebu (11).
Búseta: Hólmagrundin góða í firðinum fagra.
Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Svona er lífið á Læk. Er sennilega ofnotað enda þekki ég engan á Læk.
