Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Stórasta stjarnan | Leiðari 22. tölublaðs Feykis
Það var víða mikil gleði um liðna helgi enda sjómannadagur og Prjónagleði og ég veit ekki hvað. Þá var mikil gleði í tilefni af því að Bubbi Morthens varð sjötugur og því tilefni til stórtónleika.
-
Stólastelpur frumsýna nýjan leikmann en Kormákur/Hvöt og Tindastólsmenn spila heimaleiki
Það er fótboltahelgi fram undan en ekki er nóg að yngri flokka mót er bæði á Selfossi og í Vestmannaeyjum þá eru allir meistaraflokkar Norðurlands vestra að spila um helgina. Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastól heimsækir HK á morgun, laugardag 13. júní en Kormákur/Hvöt og meistaraflokkur karla spila bæði heimaleiki á sunnudaginn 14. júní. -
Stinningskaldi í dag en útlit fyrir ágætis veður um helgina
Það er stinningskaldi að norðan á Króknum í dag, hitinn slagar í tíu gráðurnar en úti fyrir grillir í gráan þokubakka. Það lægir þegar líður á kvöldið og á morgun, laugardag, er gert ráð fyrir björtu veðri og stilltu og hitinn hoppar yfir í tveggja stafa tölu. Skaplegt veður verður á sunnudaginn, bjart framan af degi en þykknar upp en bjartara vestan til á Norðurlandi vestra. -
-
-
Brautskráning nemenda í Fiskeldis- og fiskalíffræði og Ferðamálafræði
Alls voru 20 kandidatar brautskráðir frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild og Ferðamáladeild við hátíðlega athöfn á Hólum þann 5. júní. Við sama tilefni var þess minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir hófu nám í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum en það nám lagði grunninn að því BS námi sem nú er í boði í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum. -
Björnis brunabangsi heimsækir Krókinn eftir viku
Gaman er að segja frá því að Björnis brunabangsi ætlar að kíkja í heimsókn til Skagafjarðar dagana 19. og 20. júní nk. Björnis hefur undanfarið verið öllum slökkviliðum landsins til aðstoðar við fræðslu og forvarnarstarf, einkum þegar kemur að fræðslu fyrir yngstu kynslóðina.
Ljósmyndavefur Feykis
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Krúttlegasta hjólamótið snýr aftur í Kjarnaskóg á sunnudaginn
Hjólreiðafélag Akureyrar, Akureyrardætur og Krónan standa á ný fyrir Krónuhjólamótinu næstkomandi sunnudag. Hjólamótið er ætlað börnum á aldrinum 2 til 12 ára og verður haldið á Birkivöllum í Kjarnaskógi. Skráning er hafin og eru öll börn velkomin til þátttöku. -
Unnur Valborg áfram sveitarstjóri í Húnaþingi vestra
Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra fór fram seinni partinn í gær og þar var kosið í nefndir og ráð. Á dögunum var tilkynnt um að Framsókn og aðrir framfarasinnar og Sjálfstæðismenn og óháðir hafi komist að samkomulagi um meirihlutamyndun. Á fundinum var borin upp tillaga þess efnis að Sigurður Líndal Þórisson B-lista yrði kjörinn oddviti sveitarstjórnar og Örn Arnarson D-lista varaoddviti. Var það samþykkt með fjórum atkvæðum en þrír fulltrúar N-lista greiddu atkvæði á móti tillögunni. -
Stefna á að auka þjónustuna og bæta við sig verkefnum
Þeir sem keyra um Krókinn í leit að nýjum og spennandi vísum að framkvæmdum hafa eflaust tekið eftir því að sunnan við Vélaverkstæði KS er búið að taka grunn og framkvæmdir hafnar. Þar stendur nefnilega til að byggja við vélaverkstæðið og er víst löngu kominn tími til að sögn Hjartar Elefsen sem tók við sem forstöðumaður í ársbyrjun 2024. Hjörtur hóf störf á vélaverkstæðinu árið 1999 og tók við verkstjórn þar sjö árum síðar. Feykir forvitnaðist aðeins um Hjört og framkvæmdirnar framundan. -
Hinsegin dagar í Skagafirði
Í Skagafirði verður haldið upp á hinsegin daga. Hátíðin mun standa yfir frá 10.-15. ágúst. Eins og kemur fram á heimasíðu Skagafjarðar er markmið hátíðarinnar að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. -
Ísak Wíum í þjálfarateymi Tindastóls
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Eins og má sjá á Facebook síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur verið gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins. -
Nældu sér í stig gegn toppliðinu
Kormákur/Hvöt heimsótti Hauka á Ásvelli í gærkvöldi. Fyrir leik voru liðin í fyrsta og fjórða sæti 2. deildar en eftir leikinn duttu Kormákur/Hvöt niður um eitt sæti og sitja í því fimmta. Leikurinn endaði 2-2 og fá því bæði lið eitt stig.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Stórasta stjarnan | Leiðari 22. tölublaðs Feykis
Það var víða mikil gleði um liðna helgi enda sjómannadagur og Prjónagleði og ég veit ekki hvað. Þá var mikil gleði í tilefni af því að Bubbi Morthens varð sjötugur og því tilefni til stórtónleika.Meira -
Ég er meistari ... já eða við | Leiðari 20. tölublaðs Feykis
Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skrifa leiðara af þessu tilefni en mér finnst rétt að nefna það að Arsenal varð enskur deildarmeistari á dögunum – nánar tiltekið 19. maí 2026. En af því að ég – og aðrir aðdáendur liðsins – erum búnir að bíða í 22 ára síðan síðast þá ætla ég að leyfa mér þann munað að skrifa leiðara um liðið mitt.Meira -
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Syngur bara alls ekki í sturtu / SIGGI DODDI
Lesa meiraSigurpáll Aðalsteinsson, í daglegu tali nefndur Siggi Doddi, svarar nú Tón-lystinni. Siggi Doddi (1970) býr í Fellstúninu á Króknum en er alinn upp á Húsavík. Hann spilar á hljómborð og oftar en ekki með hljómsveitinni Von. Þá er kappinn í landsliðsflokki í veitinga- og skemmtanabransanum en Siggi Doddi rekur ásamt konu sinni veitinga- og skemmtistaði á Króknum og á Akureyri.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
19. júní kl. 14:00-18:00
Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum þann 19. júní!
Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka.
Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.
Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar er stefnt að því að ljúka endurbyggingu síðasta hússins, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.
Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem er til að veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða til að skoða húsin.
Kaffi, drykkjarföng og léttar veitingar verða í boði, stefnt er að því að lifandi tónlist létti okkur lundina og meðlimir í Pilsaþyt heiðri okkur með nærveru sinni.
Stefnt er að því að hefja dagskrá kl. 14.00 (með fyrirvara um breytingar) en nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Verið öll velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 146: Sirrí í Glaumbæ
Lesa meiraNafn: Sigríður Sigurðardóttir.
Árgangur: 1954.
Hvað er í deiglunni: Vangaveltur um tilveruna.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Þjóðminjavörður eða flugmaður.
