Athugið ég er í framboði

Sigurjón Þórðarson
Sigurjón Þórðarson

Mér finnst rétt að skýra fjarveru mína í þætti á Stöð 2 með oddvitum lista sem bjóða fram til Alþingis 2016, í Norðvesturkjördæminu. Ástæðan er einföld - Fréttastofa Stöðvar 2 útilokaði mig frá því að taka þátt í þættinum.

Ekki veit ég hvers vegna Stöð 2 vill leggja bann á málflutning Dögunar í Norðvestur kjördæminu - Ekki er ólíklegt að það sé gagnrýni Dögunar á fjármálasukkið og skattaskjólin, sem tengist óneitanlega eigendum Stöðvarinnar?

Dögun sem berst fyrir almannahagsmunum hefur mátt sæta þöggun á Stöð 2 á meðan nýtt framboð Viðreisnar, með áberandi andlitum, auðmanna, talsmanna kvótagreifa og álvera auk kúlulánaþega hafa verið eins og gráir kettir í þáttum fjölmiðlasamsteypunnar. Ég vil þakka þeim mörgu í kjördæminu sem ég hef hitt á ferðum mínum síðustu vikur fyrir sérstaklega góðar móttökur og vona að áframhald verði á því.

Sigurjón Þórðarson

oddviti lista Dögunar í Norðvestur kjördæminu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir