Arctic Coastline Route – kynningarfundir á morgun, 28. febrúar, á Skagaströnd og Hvammstanga

Ferðamannavegur um Norðurland.
Ferðamannavegur um Norðurland.

Þriðjudaginn 28. febrúar er boðið til kynningarfundar um ferðamannaveginn "Arctic Coastline Route". Fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu og annað áhugafólk er hvatt til að mæta á fundinn!
Ferðamannavegurinn liggur að mestu meðfram standlengju Norðurlands og er tilgangurinn að þróa nýtt aðdráttarafl fyrir norðurhluta Íslands.  Verkefnið hófst árið 2016 og er tilgangur fundarins að gefa innsýn inn í markmið, áherslur og fyrstu skref. 
Tækifæri gefst til umræðna og áhrifa á verkefnið og er m.a. leitað hugmynda á endanlegt nafn leiðarinnar.
Verkefnastjóri Arctic Coastline Route Christiane Stadler mun kynna verkefnið og fer fundurinn fram á ensku.

Fundarstaðir:   Skagaströnd kl. 13-14:30 Kaupfélagshúsið (Einbúastíg 2)
                           Hvammstangi kl. 16:30-18 Selasetrið
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hér  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir