Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan - Myndband

Leikhópur LS: Inga Dóra Ingimarsdóttir, Ingrid Jónsdóttir leikstjóri, Thelma Björk Gunnarsdóttir, Haukur Skúlason, Guðbrandur J. Guðbrandsson, Elva Björk Guðmundsdóttir og Saga Sjöfn Ragnarsdóttir. Mynd: PF
Leikhópur LS: Inga Dóra Ingimarsdóttir, Ingrid Jónsdóttir leikstjóri, Thelma Björk Gunnarsdóttir, Haukur Skúlason, Guðbrandur J. Guðbrandsson, Elva Björk Guðmundsdóttir og Saga Sjöfn Ragnarsdóttir. Mynd: PF

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir gamanleikinn Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan nk. sunnudag klukka 20. Leikritið fjallar um glaumgosann Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum en þær eru á stanslausum þeytingi, hver í sinni þotunni hjá sitthverju flugfélaginu. Góð skipulagning Jónatans, og liðlegheit húshjálparinnar, gerir það að verkum að þær vita ekki hver af annarri. 

Allt gengur þetta vel þangað til einn daginn er flugfélögin endurnýja flugflota sína og áætlanir breytast og þar með skipulagið sem virkaði fram að því. Ekki bætir það úr skák að Robbi, „besti vinur“ Jónatans dúkkar upp og ruglar ruglið enn meira.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem tekið var á æfingu í vikunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir