Einn og hálfur milljarður í uppbyggingu

Í fjórða þætti Atvinnupúlsins í Skagafirði, sem frumsýndur er á N4 í kvöld, er m.a. rætt við Tryggva Þór Haraldsson forstjóra RAKIK. Hann segir að allt að einum og hálfum milljarði króna verði varið í verkefni í Skagafirði næstu misserin.

Uppbygging RARIK, sem verið hefur í undirbúningi í nokkurn tíma, miðast fyrst og fremst að því að tryggja raforkuöryggi í Skagafirði og að raforkunotkun geti tvöfaldast á svæðinu. Landsnet áformar að leggja 66 kílóvolta jarðstreng frá Varmahlíð í nýja aðveitustöð á Sauðárkróki og verður hún staðsett í iðnaðarhverfinu syðst í bænum.

Sauðárkrókur hefur hingað til verið tengdur við eina línu frá Varmahlíð og hefur rafmagnsöryggi ekki verið upp á það besta. Rafmagnsnotkun staðarins er upp á 4-5 megavött en í náinni framtíð er áætlað að hún muni tvöfaldast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir