Fór í hjartastopp á fótboltaæfingu

Helga Sigríður Eiríksdóttir hefur starfað sem námsráðgjafi við FNV þetta skólaár í fjarveru Margrétar Helgu Hallsdóttur. Hún hefur sótt fótboltaæfingar, bæði með mfl. kvenna og áhugahópi eldri drengja  í íþróttahúsinu en það var einmitt hjá strákunum sem Helga hné niður sl. miðvikudag og fór í hjartastopp. Mynd af Facebook.
Helga Sigríður Eiríksdóttir hefur starfað sem námsráðgjafi við FNV þetta skólaár í fjarveru Margrétar Helgu Hallsdóttur. Hún hefur sótt fótboltaæfingar, bæði með mfl. kvenna og áhugahópi eldri drengja í íþróttahúsinu en það var einmitt hjá strákunum sem Helga hné niður sl. miðvikudag og fór í hjartastopp. Mynd af Facebook.

Í síðustu viku var Helga Sigríður Eiríksdóttir, námsráðgjafi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, á fótboltaæfingu með félögum sínum í íþróttahúsinu á Sauðárkróki, sem er ekki í frásögu færandi nema að því leyti að hún hné niður og fór í hjartastopp. Var henni veitt fyrsta hjálp sem fólst í hnoði, blæstri og notkun á stuðtæki.

Hún var flutt í kjölfarið með sjúkrabíl til Akureyrar og þaðan til Reykjavíkur með sjúkraflugi í hjartaþræðingu á Landsspítalanum þar sem hún dvaldist í góðu yfirlæti þegar Feykir hafði samband við hana sl. laugardag. Hún segist ekki hafa fundið fyrir neinu áður, en í rannsóknum kom í ljós eitthvað sem virðist vera ör á hjartanu sem gefur til kynna að hún hafi fengið áfall einhvern tíma áður en ekki tekið eftir því. „Greinilega skagfirsku genin,“ segir Helga á léttu nótunum.

„Ég fann ekki fyrir neinu og þegar ég vaknaði gerði ég mér enga grein fyrir því sem á undan hafði gengið. Ekki búið að taka ákvörðun hvað verður hjá mér en ég fer í segulómun á mánudaginn [í dag] og kannski þarf ég að fá bjargráð en ekki hefur verið tekin ákvörðun um það. Einhverjar skemmdir eru á hjartanu en vonandi litlar.“

Helga segir að sér líði vel en er smá stressuð með hvað verður í framhaldinu. „Ef ég fæ bjargráð má ég væntanlega ekki spila fótbolta. Við samstuð gæti hann stuðað mig.

Ég myndi vilja koma fram þökkum til allra sem hjálpuðu mér, fótboltafélaganna, sjúkraflutningamanna, Kela [kennara] og auðvitað læknanna. Held að Sibbi hafi farið með mér í sjúkrabílnum sem mér fannst gott vegna þess að við vinnum saman,“ segir Helga og bætir því við að erfitt sé fyrir hana að muna eftir öllu, þar sem allt sé í þoku hjá henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir