Geymsluhúsnæði keypt fyrir muni Byggðasafnsins
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur skoðað kosti iðnaðarhúsnæðis sem fyrirhugað er að byggja við Borgarflöt 17-19 á Sauðárkróki og telur það besta kostinn sem bráðabirgðahúsnæði fyrir muni Byggðasafns Skagfirðinga uns fullbúið varðveisluhúsnæði verður tekið í notkun. Nefndin mælir með því við byggðarráð að gengið verði til samninga um kaup á fullnægjandi rými að Borgarflöt 17-19.
Byggðarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að ganga til samninga um kaup á rými að Borgarflöt 17-19, tekið af framkvæmdafé eignasjóðs. Jafnframt var sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi þar um og undirrita öll skjöl þar að lútandi.