Hætta á stórfelldri byggðaröskun

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps samþykkti á fundi sínum í gær ályktun vegna lækkunar á afurðaverði til sauðfjárbænda í komandi sláturtíð og lýsir yfir þungum áhyggjum. „Verði boðaðar verðlækkanir á afurðaverði til sauðfjárbænda nú í haust að veruleika er rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa í landinu algerlega brostinn. Afleiðingarnar verða, hrun í búgreininni og í framhaldi af því stórfelld byggðaröskun“.

„Sauðfjárrækt er undirstaða byggðar í héraðinu og þar af leiðandi hriktir í byggðinni þegar fótum er kippt undan þeirri starfsemi. Sauðfjárbúskapur er stærsta atvinnugrein innan Húnavatnshrepps og hefur boðuð lækkun á verði til sauðfjárbænda gífurleg áhrif á afkomu heimila í Húnavatnshreppi og sveitarfélagsins í heild. 

Nú, annað árið í röð standa sauðfjárbændur frammi fyrir verulegri tekjuskerðingu og á komandi hausti af þeirri stærðargráðu að ekkert mun standa eftir af tekjum búanna til greiðslu á launum, þegar kostnaður við framleiðsluna hefur verið greiddur. Laun bænda vegna búrekstrarins verða því engin.  Miklir fjárhagsörðugleikar blasa við, sérstaklega skuldsettum bændum. Kemur tekjuskerðing augljóslega harðast niður á þeim sem nýlega hafa byrjað búskap, sem eru í flestum tilfellum yngstu bændurnir. 

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á stjórnvöld, forystumenn bænda, sláturleyfishafa og aðra hlutaðeigandi að leita allra leiða til leysa þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er. Leita þarf lausna án tafar, en drepa ekki málinu á dreif með karpi um orsakir vandans,“ segir í ályktun sveitarstjórnar Húnavatnshrepps.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir