Kvennafrídagurinn á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður
24.10.2016
kl. 16.50
Um 300 manns mættu í samstöðugöngu á Sauðárkróki sem farin var í tilefni Kvennafrídagsins sem er í dag. Kvenkyns nemendur og starfsfólk Fjölbrautaskóla Norðurland vestra á Sauðárkróki hvöttu konur til að leggja niður vinnu klukkan 14:38 og ganga með þeim og þiggja veitingar á eftir.
Safnast var saman neðan bóknámshúss FNV en þar flutti Sigríður Þorgrímsdóttir ávarp í tilefni dagsins. Síðan var haldið af stað og gengið út að Kirkjutorgi og til baka og allir boðnir í kaffi í heimavist skólans. Ingileif Oddsdóttir, skólameistari og einn skipuleggjenda göngunnar, sagði þátttöku framar vonum en um 300 manns hafi mætt, bæði konur og karlar.