Lært í þrívídd og sýndarveruleika
Árskóli á Sauðarkróki hefur, fyrstur skóla landsins, tekið í notkun sýndarveruleikagleraugu sem opnar á óþrjótandi möguleika í allri kennslu skólans. Auk gleraugnanna voru keyptir snjallsímar sem hluti búnaðar og myndavél sem hentar til verkefnavinnu nemenda.
„Gamla leiðin var að sýna eina mynd í skólabók, ef hún var þá til. Það er ekki til mynd um lífhagkerfið í skólabókum og ekki margar myndir af makríl. En með þessu ferðu á staðinn, ert þarna og þetta gefur mikla möguleika í kennslu, opnar þvílíkan heim, segir Ingvi Hrannar Ómarsson verkefnastjóri í Árskóla. Hann segir að nú sé reynt að snúa hlutunum við með því að vera á undan með tæknina inn í skólann. „Vaninn er að skólinn sé alltaf síðastur með tæknina en nú erum við að breyta því og gefum krökkunum okkar forskot þar sem verið er að vinna með svona tækni, þá þekkja þau hana,“ segir Ingvi Hrannar. Þegar blaðamann bar að garði voru nemendur 10. bekkjar að kynna sér lífhagkerfið en Matís í samstarfi við Skottafilm hafa útbúið myndband þar af lútandi og var það kynnt nemendum í tilefni þessa stundar.
„Við erum að nýta þessa tækni núna til að miðla vísindalegri þekkingu og fróðleik til þessarar ungu kynslóðar. Okkur fannst tilvalið að taka þátt í þessu verkefni með Árskóla. Við erum að vinna verkefni núna þar sem við notum Skagafjörð sem dæmisögu eða „case studyu“ um sterkt hagkerfi þar sem sveitarfélög, fyrirtæki og fólkið hefur tekið höndum saman og komið af stað flottu lífhagkerfi,“ segir Ragnhildur Friðriksdóttir sérfræðingur hjá Matís.
Hægt er að nálgast óþrjótandi efni á YouTube undir leitarorðinu 360.