„Litla daman er hörkudugleg“

Stúlka Valsdóttir. Mynd úr einkasafni.
Stúlka Valsdóttir. Mynd úr einkasafni.

Lilja Gunnlaugsdóttir og Valur Valsson, búsett í Áshildarholti við Sauðárkrók, eignuðust fallega stúlku þann 12. janúar sl. Stúlkan var búin að eiga erfiðar síðustu vikur í móðurkviði og höfðu mæðgurnar verið í ströngu eftirliti frá því að hraðtaktur kom í ljós í mæðraskoðun á 34. viku. Stúlkan fór ásamt foreldrum sínum til Svíþjóðar þar sem gera þurfti "opna hjartaaðgerð" á henni. Dvölin hefur verið lengri en áætlað var í fyrstu og ennþá er óvíst hvenær þau komast heim með dömuna. Lilja og Valur eiga fyrir aðra dóttur, Ásrúnu. Hún er 5 ára og er mjög dugleg stelpa sem bíður spennt eftir að fá mömmu og pabba heim með litlu systur. Búið er að stofna styrktarsíðu á Facebook sem heitir Styrktarsíða Stúlku Valsdóttur þar sem hægt er að styrkja þau á einn eða annan hátt og kaupa vörur á sanngjörnu verði og rennur hluti andvirðis til Lilju og fjölskyldu.

„Þetta byrjaði allt með því að ég fór í hefðbundna mæðraskoðun, komin 34 vikur, þann 21. desember. Þá kom í ljós hraðtaktur hjá dömunni, slögin fóru í allt að 230 slög á mínútu sem er verulega yfir mörkum. Þá fór ég til Akureyrarí frekari skoðun og var send samdægurs til Reykjavíkur með flugi og var lögð inn á Landsspítalann. Þar var reynt að meðhöndla hraðtaktinn hjá dömunni í gegnum mig, með hjartalyfjum,“ segir Lilja á styrktarsíðunni. Þá voru aðeins þrír dagar til jóla og allur undirbúningur fyrir jólin sett á ís og síðan þá hefur Lilja ekki komist heim til sín. Hún segir að meðhöndlunin með hjartalyfjum í gegnum hana hafi gengið ágætlega en eftir 37 vikna meðgöngu var stúlkan tekin með keisara þann 12. janúar síðastliðinn. „Þá staðfestu læknarnir, eins og grunur var um að hún væri líka með stíflaðan ósæðarboga og þrengingu á ósæðinni sem yrði að laga með hjartaaðgerð í Svíþjóð,“ segir Lilja en þær mæðgur voru fluttar til Lundar þann 16. janúar og fór daman unga í aðgerð þremur dögum síðar. „Aðgerðin gekk vel og var dömunni haldið sofandi í nokkra daga og skurðinum síðan lokað þegar hjartað var búið að jafna sig. Síðan tók við tímabil til að jafna sig og fínstilla lyfjameðferð vegna hraðtaktsins. Mögulega mun það eldast af henni og hjartað jafnar sig.

Komið hefur í ljós að stúlkan er með aukarafrás sem getur valdið þessum aukaslögum og þarf að meðhöndla með lyfjagjöf. Framleiðir hún of mikinn mænuvökva þannig að heilahólfin voru farin að stækka en þó ekki farin að þrýsta alvarlega á heilann og heilabörkurinn er heilbrigður. Fór hún því í höfuðaðgerð þar sem slanga var sett úr heilahólfunum niður í maga sem verður þar alla hennar ævi en á ekki að há henni neitt, fyrir utan reglulegt eftirlit. Mænuvökvinn byrjaði að leita út um sárið eftir aðgerðina, þar sem vökvinn var svo mikill, þannig að aðra aðgerð þurfti að gera til að loka betur saumnum,“ segir móðirin en eftir þetta allt var vökvi við hjartað sem hafði safnast fyrir þannig að koma þurfti dreni fyrir við hjartað, til að losa vökvann. Þurfti því enn eina aðgerðina til að koma dreninu fyrir.

„Litla daman er hörkudugleg og lætur þetta ekki á sig fá. Hún er sterk og hefur komist vel í gegnum allar aðgerðirnar aðeins rúmlega mánaðar gömul“.

Kostnaður við ferðina og aðgerðirnar eru greiddar af ríkinu en ljóst er að vinnutap þeirra hjóna er mikið og óvíst hve lengi það stendur. Stúlkan mun þurfa á reglulegum læknisheimsóknum að halda til margra ára. Með góðri tækni og framförum í læknisfræðum í dag mun hún geta lifað eins og hvert annað barn og er vonast til að allt gangi að óskum.

Styrktarreikningurinn er eftirfarandi:

0370-13-300360

kt. 111082-4999

 

Styrktarkvöld

Á morgun, fimmtudaginn 9. mars, verður haldið styrktarkvöld á Eftirlæti, Aðalgötu 4 á Sauðárkróki, frá kl.17-20. Þar verða gjafapakkar með snyrtivörum og skarti til sölu og ágóðinn rennur til fjölskyldunnar. Einnig rennur ágóði af seldum gjafabréfum í snyrtingu og Bowen til þeirra. Þá verða vörurnar frá Skrautmen, sem Lilja á og rekur, sýnilegar á kvöldinu til að styrkja fyrirtækið hennar.

Einnig verða í boði happdrættismiðar á 2.000 kr. stk. sem hægt er að kaupa á Eftirlæti og á styrktarsíðunni en dregið verður á föstudaginn. Vinningarnir verða flottir gjafapakkar.

Styrktarsíðan er www.facebook.com/StulkaValsdottir.

Fleiri fréttir