Öllu fé sem fór yfir Blöndu í sumar skal slátrað

Matvælastofnun hefur tekið ákvörðun um að á fjórða hundrað fjár sem fór yfir sjúkdómavarnarlínu Blöndu í sumar verði slátrað í haust. Frá þessu var greint í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins þar sem rætt var við Þorleif Ingvarsson, sauðfjárbónda og oddvita Húnavatnshrepps, en hann segir vinnubrögð Matvælastofnunar óboðleg og að líklegt sé að bændur kæri ákvörðunina.

Blanda er í flokki varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma og er því ekki heimilt að flytja fé þar yfir. Varnir við ána eru þó litlar og eftir að áin var virkjuð er hún þurr á stórum kafla og því greiðfært fyrir fé þar yfir. Síðust árin hefur verið veitt undanþága sem leyfir að fé úr fyrstu göngum megi lifa þó það hafi farið yfir en því er ekki að heilsa í ár, segir í frétt Ríkisútvarpsins. Þorleifur segir að riðutilfelli í Skagafirði í fyrra geri það að verkum að harðar sé tekið á málum en fyrr. Sauðfjárveikivarnir séu hins vegar á ábyrgð Matvælastofnunar og því ekki sanngjarnt að refsa bændum meðan þær séu ekki til staðar. „Það getur þýtt náttúrulega ákveðið tjón ef menn eru að missa mikið af ungu fé. Mér þætti það ekki ótrúlegt að þetta verði kært,“ segir Þorleifur í samtali við Ríkisútvarpið.

„Mönnum ofbýður alveg vinnubrögðin og töluvert mikil reiði út af þessu, af því það eru búnar að vera bréfaskriftir í allt sumar til ráðuneytisins og reynt að fá einhver svör en það er bara eins og það gangi ekki,“ segir Þorleifur, en fyrir helgina sendi Matvælastofnun bændum bréf þar sem tilkynnt var að slátra þyrfti öllu fé sem farið hefur yfir ána í sumar. Í réttum um helgina kom í ljós að hér er um að ræða á fjórða hundrað fjár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir