Ósáttir við hvernig mál hafa þróast

Sagt er frá því á Vísi.is að ólga sé innan lögreglunnar á Norðurlandi vestra vegna yfirstjórnar hennar á svæðinu. Jafnframt er því haldið fram að starfsandinn sé í molum og samskipti stjórnenda lögreglunnar við almenna lögreglumenn óásættanleg. Því til stuðnings er birt bréf frá fundi félags lögreglumanna á Norðvesturlandi til Páls Björnssonar lögreglustjóra þar sem hann er m.a. krafinn svara með tillögur að úrbótum.

Þar koma fram áhyggjur fundarins að félagsmenn séu farnir að leita sér að öðrum störfum og er óskað eftir tillögum að úrlausnum sem allra fyrst. Í samtali við Feyki segir Pétur Björnsson, formaður LNV, að lögreglumenn hafi ekki verið sáttir við hvernig mál hafa þróast eftir sameiningu lögregluembætta á Norðurlandi vestra. Hann segir að bréfið umrædda hafi ekki átt að lenda hjá fjölmiðlum. „Við höfum ekki hist og það er að mínu mati lágmarks kurteisi að ræða við Pál fyrst, áður en það birtist í fjölmiðlum.“ Að öðru leyti vildi Pétur ekki tjá sig um málið.

 

Fleiri fréttir