Mótmæla fyrirhugaðri skerðingu á póstþjónustu harðlega
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps mótmælir harðlega fyrirhugaðri skerðingu á póstþjónustu í dreifbýli, eins og áform eru um, og telur þau „lýsa grátlegu metnaðarleysi Íslandspósts gagnvart þjónustuhlutverki sínu,“ eins og segir í bókun sveitarstjórnar frá 27. janúar síðastliðnum.
„Verði af þessum áformum liggur fyrir að það hefur verulega neikvæð áhrif á búsetuskilyrði og atvinnu í dreifbýli, sérstaklega á tímum þar sem mikið getur legið við að aðföng berist með skjótum hætti svo sem vörur og varahlutir,“ segir í fundargerðinni.
Bókun um póstþjónustu var samþykkt samhljóða.