Skólarnir á Hofsósi undir eitt þak
Fyrir skömmu voru færðar af því fréttir að mygla hafi fundist í húsnæði leikskólans á Hofsósi sem síðar kom í ljós að var ekki hættuleg. En sem leikskóli hefur húsnæðið ekki þótt viðunandi og þarfnast það verulegra úrbóta. Á fundi byggðaráðs í síðustu viku kom fram að mikilvægt væri að leysa húsnæðismálin til framtíðar.
Af því tilefni fól byggðarráð sveitarstjóra að koma með tillögu til úrbóta svo að ekki myndist rof á starfsemi leikskólans. Jafnframt var ákveðið að hefja hönnunarvinnu á húsnæði Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi með það fyrir augum að grunn-, leik- og tónlistarskóli verði undir einu þaki. Einnig mun verða skoðað hvernig koma megi íþróttaaðstöðu fyrir í tengslum við þessa hönnun.