„Það er meðal verkefna minna hér að fyrirtækin á Norðurlandi Vestra vaxi og dafni“

Magnús Bjarni Baldursson, ráðgjafi hjá SSNV. Mynd: Úr einkasafni.
Magnús Bjarni Baldursson, ráðgjafi hjá SSNV. Mynd: Úr einkasafni.

Hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV eru sjö starfsmenn í 6,5 stöðugildum, þar af fimm atvinnuráðgjafar. Hlutverk þeirra er meðal annars að liðsinna þeim sem vilja koma upp atvinnurekstri á starfssvæðinu sem nær yfir Húnaþing vestra, Austur-Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu. Einn þessara ráðgjafa er Magnús Bjarni Baldursson, sem tók til starfa á Blönduósi sl. vor. Blaðamaður Feykis hitti Magnús á föstudagseftirmiðdegi og spurði hann meðal annars út í starfið, bakgrunnin, áhugamálin og hvernig það er fyrir borgarbarn að flytjast á Blönduós.

„Markaðsmál hafa alltaf verið mér mjög hugleikin og ég er árangursdrifinn að upplagi, held ég. Ég er ekkert endilega að horfa á garðinn þar sem hann er lægstur. Eftir því sem verkefnin eru fjölbreyttari og skemmtilegri þá eru þau mér enn frekar spennandi og áhugaverð,“ segir Magnús m.a. í opnuviðtali í nýjasta tölublaði Feykis.

Áður en Magnús kom til starfa hjá SSNV hafði hann m.a. starfað á auglýsingastofum í Reykjavík. Hann segir það nokkuð frábrugðið núverandi starfi, þar sem viðskiptavinirnir hafi oftast verið komnir lengra í sínum rekstri þegar þeir leituðu til auglýsingastofanna heldur en þeir sem leita til SSNV. „Hér hefur fólk eða fyrirtæki ef til vill minna fé til að ráðstafa í markaðsmál og að sjálfsögðu leitar maður þeirra leiða sem að duga og henta. Það er ekki sjálfgefið að þetta kosti fullt af peningum.“

Fleiri fréttir