Skatastaðavirkjanir C og D, Villinganesvirkjun og Blönduveita í verndunarflokk en Blöndulundur í orkunýtingarflokk

Horft yfir Villinganesvirkjun og lónið úr lofti. Mynd úr skýrslu um Villinganesvirkjun sem virkjunarkost til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar á vefsíðunni Ramma.is.
Horft yfir Villinganesvirkjun og lónið úr lofti. Mynd úr skýrslu um Villinganesvirkjun sem virkjunarkost til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar á vefsíðunni Ramma.is.

Verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar skilaði í dag umhverfis- og auðlindaráðherra tillögum sínum að flokkun virkjunarkosta. Verkefnisstjórnin leggur til að Skatastaðavirkjun C og D, Villinganesvirkjun og Blöndu – veita úr Vestari Jökulsá verði í verndunarflokk. Þá leggur verkefnisstjórnin til að Blöndulundur bætist í orkunýtingarflokk áætlunarinnar.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu leggur verkefnisstjórnin til að átta nýir virkjunarkostir bætist í orkunýtingarflokk áætlunarinnar, þ.e. Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun, Austurgilsvirkjun, Austurengjar, Hverahlíð II, Þverárdalur og Blöndulundur. Um er að ræða fjórar vatnsaflsvirkjanir með uppsett afl upp á alls 277 MW, þrjár jarðhitavirkjanir með uppsett afl allt að 280 MW og einn vindlund með uppsett afl allt að 100 MW. 

„Ekki eru lagðar til breytingar á flokkun þeirra virkjunarkosta sem fyrir voru í orkunýtingarflokki en þeir eru alls tíu talsins. Samtals er því lagt til að átján virkjunarkostir verði flokkaðir í orkunýtingarflokk og hafa þeir samtals 1421 MW uppsett afl. Með þessari tillögu verkefnisstjórnar aukast möguleikar á orkuvinnslu um sem nemur tæpum 50% í jarðvarmaafli og um rúm 150% í vatnsafli frá 2. áfanga rammaáætlunar,“ segir í fréttatilkynningu. 

Í verndarflokk bætast við fjögur landsvæði með tíu virkjunarkostum, þ.e. Skatastaðavirkjunum C og D, Villinganesvirkjun, Blöndu – veitu úr Vestari Jökulsá, Fljótshnjúksvirkjun, Hrafnabjargavirkjunum A, B og C, Búlandsvirkjun og Kjalölduveitu. Allir nýir virkjunarkostir á landsvæðum í verndarflokki eru vatnsaflsvirkjanir.

„Ekki eru lagðar til breytingar á flokkun þeirra virkjunarkosta sem fyrir voru í verndarflokki en þeir eru sextán talsins. Samtals er því lagt til að 26 virkjunarkostir verði flokkaðir í verndarflokk,“ segir í tilkynningu.

Þrjátíu og átta virkjunarkostir eru í biðflokki og hafa tíu bæst við þann flokk frá fyrri áfanga. Þar af eru fjórir virkjunarkostir í jarðvarma (Trölladyngja, Innstidalur, Hágönguvirkjun og Fremrinámar), fimm í vatnsafli (Hólmsárvirkjun án miðlunar, Hólmsárvirkjun neðri við Atley, Búðartunguvirkjun, Hagavatnsvirkjun og Stóra-Laxá) og einn í vindorku (Búrfellslundur). 

Við afhendingu lokaskýrslunnar sagði Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra,  afhendingu tillagna verkefnisstjórnar vera mikil tímamót. „Þetta er í fyrsta sinn sem lögð er fram tillaga sem er unnin í samræmi við lög um rammaáætlun sem tóku gildi að fullu árið 2013. „Ekki er síður ánægjulegt að tímaáætlun og ferlið sem lagt var upp með stóðst. Þessu ber að fagna og á verkefnisstjórn rammaáætlunar þakkir skildar fyrir sitt framlag.“  

Hér má skoða lokaskýrslu verkefnisstjórnar 3. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar 2013 - 2017.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir