Helgi Freyr klár í slaginn

Eftir gott sumarfrí er blekið aftur farið að streyma úr pennanum hjá formanni körfuboltadeildar Tindastóls, Stefáni Jónssyni en reynsluboltinn, Helgi Freyr Margeirsson, ritaði nafn sitt á samning í dag. Í vor fékk penninn að dansa um í stássstofunni á Sjávarborg en Stefán segir að að þessu sinni hafi verið kvittað undir í Barmahlíð 5 á Sauðárkróki þar sem Borgarstjórinn var upptekinn við vinnu.

Að sögn Stefáns lék Helgi Freyr sinn fyrsta deildarleik með meistaraflokki Tindastóls fyrir u.þ.b. 21 ári síðan og á hann ófáa leikina með liðinu allt fram á þennan dag. Hafa margir glaðst yfir fallegum þristum kappans og ekki síst á ögurstundum.

HÉR er hægt að nálgast gamalt viðtal við Helga er hann var á leið á Krókinn eftir smá úthald í Danmörku og USA árið 2009.

Hér fyrir neðan má sjá einn lungamjúkan þrist frá Helga í lok leiks Tindastóls og KR árið 2015.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir