Alvarlega slasaður eftir umferðaslys

Pilturinn var fluttur á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Pilturinn var fluttur á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Pilt­ur á tví­tugs­aldri ligg­ur al­var­lega slasaður á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Foss­vogi. Samkvæmt heimildum Mbl.is var hann flutt­ur þangað í morg­un með þyrlu Land­helg­is­gæslu Íslands eft­ir bíl­slys á Holta­vörðuheiði.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar lagði af stað frá Reykja­vík­ur­flug­velli klukk­an 05:23 í morg­un og sótti pilt­inn á slysstað. Var flogið með hann á Land­spít­al­ann í Foss­vogi og lenti þyrl­an þar klukk­an 07:02.

Í fréttinni kemur fram að hinn slasaði sé þungt hald­inn og ekki sé unnt að veita frek­ari upp­lýs­ing­ar um málið á þess­ari stundu.

Fleiri fréttir