„Enn og aftur var farið að aðstoða erlenda ferðamenn“
Björgunarsveitarmenn í Húnum á Hvammstanga komu kínverskum ferðamönnum til aðstoðar í gær að þessu sinni á vegi 717 við Borgarvirki. Samkvæmt Facebook-síðu Húna er þetta í annað sinn í þessari viku sem þeir koma erlendum ferðamönnum til aðstoðar á þessum vegi.
„Enn og aftur var farið að aðstoða erlenda ferðamenn í dag. En rétt undir fimm var beðið um að við myndum aðstoða erlenda ferðamenn á vegi 717 við Borgarvirki (2. sinn í þessari viku), þar höfðu Kínverjar fest sig illa. Á leiðinni að Borgarvirki þá var haft samband út af öðrum ferðamönnum sem höfðu ekið út af rétt sunnan við Súluvelli á Vatnsnesi,“ segir í Facebook-færslu Húna í gær.
Fram kemur að báðir bílarnir hefðu verið losaðir og að vonandi gangi ferðalagið vel hjá ferðamönnunum hér eftir. „Ísland allt árið eða hvað það er nú kallað?“ segir loks í færslunni.