Nærandi ferðaþjónusta | Freyja Rut Emilsdóttir skrifar

Freyja Rut Emilsdóttir. MYND AF FB
Freyja Rut Emilsdóttir. MYND AF FB

Nærandi ferðaþjónusta er hugtak sem fær sífellt meiri athygli í umræðunni bæði hér á Íslandi sem og um heim allan. Hugtakið felur í sér markvissar aðgerðir sem fólk og fyrirtæki geta gripið til með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfi og náttúru og skilja þannig við áfangastaðinn, samfélagið og náttúruna í betra ástandi en áður. Þannig er farið skrefi lengra en sjálfbærni þar sem markmiðið er að skilja ekki við umhverfið í verra ástandi en áður og ganga ekki á auðlindir framtíðar.

Nærandi ferðaþjónusta snýst þannig um að byggja upp auðlindir fyrir komandi kynslóðir. Hugmyndafræði nærandi ferðaþjónustu og nærandi viðskiptahátta felur í sér velsæld og jafnvægi, þar sem árangur í rekstri er metinn út frá fjölbreyttari þáttum en eingöngu efnahagslegum. Fólk, hvort sem það eru íbúar, starfsfólk í ferðaþjónustu eða gestir svæðisins, eru hluti af sama vistkerfi sem bæði hafa áhrif og verða fyrir áhrifum hvert af öðru. Markmið nærandi ferðaþjónustu er að vinna í sátt og samlyndi við alla þessa hópa og byggja upp rekstur og framboð þjónustu sem hefur jákvæð áhrif og styrkir svæðið til lengri tíma, hvort sem horft er til náttúruverndar, efnahagslegra þátta, menningarlegra eða samfélagslegra.

Markmið íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi á heimsvísu í sjálfbærri þróun, eins og fram kemur í stefnuramma til ferðaþjónustu til 2030 og Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur frá 2022 leitt norrænt þróunarverkefni um nærandi ferðaþjónustu, sem fjármagnað er af Norrænu ráðherranefndinni og unnið af Íslenska Ferðaklasanum.

Í síðustu viku fór fram vinnustofa í verkefninu CE4RT (e. Circular Economy for Regenerative Tourism), sem við í 1238/Gránu Bistró erum þátttakendur í. Verkefninu er stýrt af Íslenska Ferðaklasanum og eru þátttakendur 16 fyrirtæki á Íslandi auk fjölda annarra frá Hollandi, Póllandi, Finnlandi og Írlandi. Þátttaka í svona verkefnum er bæði fræðandi, skemmtileg, hvetjandi og mikilvæg fyrir ferðaþjónustufyrirtæki af öllum stærðargráðum. Við höfum nú þegar tekið stór og mikilvæg skref í átt að sjálfbærum og nærandi viðskiptaháttum og má þar t.d. nefna aukna áherslu á að versla við birgja í heimabyggð fyrst og fremst hvenær sem því er viðkomið, bæði þegar kemur að hráefni á matseðli sem og minjagripum í verslun, mörkun umhverfis- og sjálfbærnistefnu sem er í vinnslu og áherslu á að miðla sögu svæðisins bæði með fastasýningu 1238, uppsetningu sýningar um húsnæði Gránu og vinnslu verkefna á við leiðsagnar um Villa Nova og gamla bæinn. Í sumar munum við síðan bjóða uppá gönguleiðsagnir um elsta hluta Sauðárkróks. Auk þess höfum við lagt metnað í að auðga menningarlíf á svæðinu með fjölbreyttum menningarviðburðum og fjölga störfum á svæðinu með alls kyns nýsköpunarverkefnum.

Í þessari viku fór fram vinnustofa í öðru Evrópuverkefni sem við erum þátttakendur í, DACCHE (e. Digital Action on Climate Change on Heritage Environments) sem snýst um að nýta stafræna tækni til að varðveita menningarlandslag og sjá hvernig það breytist með loftslagsbreytingum. Verkefnið er unnið í samstarfi við aðila frá Svíþjóð, Færeyjum, Skotlandi og Írlandi og eru það Skriðuklaustur og Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista sem stýra vinnu íslensku aðilanna. Loftslagsbreytingar hafa augljós og ótvíræð áhrif á náttúruna en einnig á menninguna, menningararfinn og samfélagið allt. Stofnanir og fyrirtæki sem miðla menningararfinum eru lykilaðilar við að hvetja íbúa og ferðamenn til aukinnar vitundar og aðgerða – alveg í takt við hugmyndafræði nærandi ferðaþjónustu.

Við erum að gera heilmargt og ná árangri á mörgum sviðum. En lengi má gera gott enn betur og við erum hvergi nærri hægt á þessari vegferð, það er alltaf varða handa við næstu vörðu.

Freyja Rur Emilsdóttir
framkvæmdastjóri hjá 1239: Baráttan um Ísland

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir