Bílveik skólabörn á Vatnsnesi

Vatnsnesvegur í fyrrasumar. Mynd: KSE
Vatnsnesvegur í fyrrasumar. Mynd: KSE

Á fundi fræðsluráðs Húnaþings vestra sl. miðvikudag var meðal annars rætt um ástand vega í Húnaþingi vestra, sérstaklega Vatnsnesvegar.  Foreldrar á Vatnsnesi hafa rætt um að senda börn sín ekki í skólann þar sem ferðatími hefur lengst mikið og börnin að verða bílveik í því ástandi sem verið hefur undanfarnar vikur. 

Þá er ferðatími kominn langt utan þess viðmiðunartíma sem Menntamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga setja. „Því miður er ekki um undantekningar að ræða heldur virðist ástandið vera viðvarandi,“ segir í fundargerð fræðsluráðsins.

Á fundinum kom fram að Sigurður Þór Ágústsson, skólastjóri grunnskóla Húnaþings vestra hefði sent bréf vegna málsins til Vegagerðarinnar og fengið svar frá Gunnar H. Gunnarssyni, svæðisstjóra Norðursvæðis Vegagerðarinnar, þar sem hann ber fyrir sig fjárskorti.

Eins og Feykir fjallaði um í 35. tölublaði er ástand Vatnsnesvegar afleitt og óhöpp þar tíð. Umferð hefur aukist gríðarlega síðustu árin og ljóst er að vegurinn er ekki gerður fyrir 100 þúsund bíla umferð.

Fleiri fréttir