Að geta notið þjónustu heimilislæknis er ein af grunnþörfum okkar allra hvar sem við búum á landinu. Það er ekki síður mikilvægt að fólk hafi aðgang að föstum heimilislækni til að tryggja samfellu í þjónustunni. Þurfa ekki sífellt að bera sig upp við nýja lækna með mein sín, áhyggjur eða við heilsufarseftirlit. Aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu í heimabyggð eru grundvallarmannréttindi. Hér á landi höfum við búið við traust opinbert heilbrigðiskerfi þar sem öll eiga sama rétt til þjónustu óháð efnahag og stöðu. Um það er þjóðarsátt.
Flest erum við sammála um að sameign þjóðar á auðlindum eigi að vera meitluð í stjórnarskrá sem og ákvæði um sjálfbæra nýtingu. Umgengni við auðlindir hefur ekki alltaf verið til fyrirmyndar og eru brotalamir í umgjörð. Nú þegar verið er að setja eftir á reglur um nýtingu fjarðanna fyrir lagareldi sést hversu óheppilegt það er.
Skatastaðavirkjun er hugsuð til þess að virkja Austari Jökulsá í Skagafirði. Uppsett afl virkjunar er 156 MW, orkugeta 1090 GWh/ár. Til þess að svo megi verða þarf að skapa uppistöðulón á hálendinu í um 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Þetta lón kæmi til með að verða um það bil 26,3 km2eða um það bil helmingi minna en Blöndulón. Öll aðrennslisgöng að og frá stöðvarhúsi eru fyrirhuguð neðanjarðar þannig að með góðum frágangi ættu ekki að verða mikil náttúruspjöll.
Leiðari vikunnar er meira svona hugleiðing um hvað varð af krummanum hér á Króknum því á tal við Feykisfólkið kom ágætur áskrifandi sem hafði áhyggjur, já eða skildi ekki hvað hefði orðið af krumma. Þannig vill til að þar sem maðurinn heldur til við sín störf hafa yfirleitt verið nokkuð mörg krummapör í gegnum árin og hann fylgst með þeim og taldi, þegar mest var, um 17 pör.
Bjórhátíðin á Hólum verður haldin nk. laugardag 1. júlí og er það í ellefta sinn sem hún er haldin. Hátíðin stendur frá kl 15:00 – 19:00 en á svæðið mæta helstu bjórframleiðendur landsins og kynna fjölbreytt úrval af gæðabjóra.