Frábær árangur á Íslandsmóti yngri flokka
 
			
						Júdódeild Tindastóls átti þrjá keppendur á Íslandsmóti yngri flokka í júdó sem haldið var í Laugabóli, hjá júdódeild Ármanns í Reykjavík, 30. apríl síðastliðinn.
Íslandsmótið er stærsta mót ársins þar sem allir sterkustu júdóiðkendur landsins koma saman og etja kappi. Keppt er í aldurs- og þyngdarflokkum en yngri flokkar eru einskorðaðir við aldurinn frá 11 til 20 ára. Allir keppendur voru til fyrirmyndar og náðist frábær árangur þar sem Þorgrímur Svavar Runólfsson hampaði Íslandsmeistaratitli í U15 -81 og Viktor Dara Magnússon varð annar í U13 -66.“
Fréttatilkynning
 
						 
								 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
