Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakjörs 1. júní 2024

Í tilkynningu frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra eru hér upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin.

Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:

  • Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
  • Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00

Hægt verður að kjósa víðar en á sýsluskrifstofum innan um­dæmis­ins og verða kjörstaðir nánar auglýstir síðar á vefsíðunni www.kosning.is og í héraðsfréttablöðum.

Atkvæðagreiðsla á heilbrigðisstofnunum innan umdæmisins og lengdur opnunartími kjörstaða verður jafnframt auglýst sérstaklega þegar nær dregur kjördegi.

Atkvæðagreiðsla í heimahúsi:

Kjósandi, sem vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, getur hvorki sótt kjörfund né kosið utan kjörfundar, getur óskað þess að greiða atkvæði í heimahúsi. Skrifleg umsókn, studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans, skal hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 30. maí. Mælst er til að beiðnir þessa efnis berist kjörstjóra án ástæðulauss dráttar.

Ábyrgð á atkvæði:

Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, og ber af því kostnað, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra í umdæmi sýslumanns þar sem hann á ekki lögheimili. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá. Á kjördag bera allir kjósendur, sem greiða atkvæði utan kjörfundar, sjálfir ábyrgð á að koma atkvæði sínu til skila.

Kjósendur skulu framvísa gildum persónuskilríkjum við kosninguna (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini).

Vakin er athygli á að unnt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um land allt.

Ýmsar upplýsingar og eyðublöð vegna komandi kosninga má fá á vefsíðunni www.kosning.is.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir