Stella í orlofi í Höfðaborg

Mynd tekin á æfingu. AÐSEND
Mynd tekin á æfingu. AÐSEND

Unglingastig Grunnskólans austan Vatna setur á sviðið í Höfðaborg Stellu í orlofi föstudaginn 15.mars kl.18:00.

Krakkarnir eru búnir að vera á fullu að æfa og vinna að leikmynd. Á heimasíðu skólans segir að það hafi á ýmsu gengið í æfingaferlinu en allt þokast þetta í rétta átt. Allir eru að passa þrýstinginn, veskan er ennþá horfin og allt er þetta partur af programmet. Umsjónakennari krakkanna Ragnheiður Halldórsdóttir leikstýrir krökkunum og lofa þau góðri skemmtun og miklum hlátri. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir