Dreifikerfi raforku verði í almannaeigu

Dreifikerfi raforku er ein af grunnstoðum samfélagsins eins og vegakerfið til ferðalaga og flutninga. Til þess að fara með svokallaða eignarhluti í þessu almannaþjónustu fyrirtæki sem síðan fékk nafnið Landsnet  voru hlutirnir skráðir á orkuframleiðslufyrirtækin i landinu sem voru alfarið í opinberri eigu: Landsvirkjun 65%, Rarik 22%, Orkuveita Reykjavíkur  7 % og Orkubú Vestfjarða 6%. Hagnaður Landsnets nam 4 milljörðum króna  2015 og eignaraðilar greiddu sér  400 milljónir króna í arð sem hefði verið betur varið í að bæta afhendingaröryggi raforku til almennings og fyrirtækja í landinu.

Áform um einkavæðingu verður að stöðva

Á nýliðnum aðalfundi Landsnets lýstu bæði stjórnarformaðurinn og iðnaðarráðherra yfir vilja til að selja Landsnet og að til greina kæmi að færa eignarhaldið til einkaaðila. Geir Gunnlaugsson stjórnarformaður Landsnets sagði núverandi eignarhald ylli tortryggni á meðal viðskiptavina og að skapa þyrfti tækifæri fyrir þá „til að selja ríkinu, sveitarfélögum eða fjárfestum hluti sína“. Hann skýrði þó ekki þessa tortryggni sína nánar eða í hvers umboði hann talaði. Iðnaðarráðherra vitnaði  í nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landsnet, þar sem segir að mikilvægt sé að kanna "allar leiðir til að tryggja og efla sjálfstæði Landsnets gagnvart öðrum aðilum á raforkumarkaði“. Jafnframt ræddi hún á fundinum um  lagasetningu sem gæti gert  það mögulegt að einkavæða raforkudreifinguna á Íslandi: „Ef einhver þeirra vill selja hlut sinn til einkaaðila eða opinberra aðila þarf því að breyta lögum, sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir.

Skipulagsvaldið fært frá sveitarfélögum til Landsnets

Alþingi samþykkti á síðasta ári lög sem  færa  skipulagsvald sveitafélaga við lagningu háspennulína að kerfisáætlun Landsnets. Greiðari leið er nú að sniðganga vilja og hagsmuni sveitarfélaga við lagningu háspennulína og  þrengt er verulega  að sveitarfélögunum til að hafa áhrif á legu háspennustrengja  eða setja skilyrði um að slíkar línur fari í jörð. Og það er kerfisáætlun Landsnets sem ræður för: „Sveitarstjórnum ber við næstu endurskoðun aðalskipulags, og eigi síðar en innan fjögurra ára frá samþykkt kerfisáætlunar, að samræma skipulagsáætlanir vegna verkefna í staðfestri tíu ára kerfisáætlun  Vafalítið mun þessi lagasetning hækka virði fyrirtækisins á almennum markaði og þau forréttindi að vera hafin yfir skipulagsvald sveitarfélaga.  Þessi lagabreyting er greinilega undanfari einkvæðingar Landsnets eins og ráðherrann talaði svo fjálglega um.

Hagsmunir íbúanna

Draumur Landsnets um risavaxnar flutningslínur í lofti um þveran Skagafjörð t.d. hefur einmitt strandað á andstöðu hreimamanna sem vilja ekki þetta ferlíki yfir sig. Sömu stjórnvöld og knúðu þessa einstæðu lagasetningu í gegnum alþingi síðastliðið vor ræða nú þörfina á lögum sem gerir þeim kleyft að selja grunnnet raforkudreifingar til einkaaðila. Einkavætt Landsnet myndi öðlast einokunaraðstöðu á meginflutningi rafmagns í landinu og jafnframt réttindi til framkvæmda og aðgerða sem eru hafin yfir lögsögu sveitarfélaganna í landinu.

Bjarni Jónsson,
sveitarstjórnarfulltrúi VG og óháðra Skagafirði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir