Hafdís og Klemmi - og leyndardómar háaloftsins

25. júní kl. 13:00-23:59
25jún

Um næstu helgi eru Lummudagar og af þvi tilefni býður Sauðárkrókskirkja til leiksýningar á laugardag kl. 13:00. Sýningin heitir Hafdís og Klemmi - og leyndardómar háaloftsins.

Þetta er skemmtileg sýning fyrir börn á öllum aldri. Persónur eru Hafdís og Klemmi sem eru jafnframt aðalpersónur þáttaseríunnar Daginn í dag en sýningin er sjálfstætt framhald þáttanna.
Sýningin fjallar um ævintýri vinanna tveggja sem finna dularfullt tæki uppi á háalofti heima hjá ömmu Hafdísar. Umfjöllunarefni sýningarinnar eru hæfileikar. Hverjir hafa hæfileika og hvernig getur maður nýtt hæfileika sína til góðs? Mikið er gert uppúr þátttöku barnanna í áhorfendasalnum.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.