Veisluís í páskabúningi með makkarónubotni og karamellusósu að hætti GRGS

Veisluísinn er kominn aftur í verslanir! Hafðu páskadesertinn einfaldan og bragðgóðan – Páskarnir eru til að njóta, þetta þarf ekki að vera flókið.

    130 g makkarónukökur, muldar
    100 g smjör, bráðið
    1 pakki (1,3L) Veisluís frá
    emmessís með eplum, kanil og kökukurli
    250 ml rjómi, þeyttur
    karamellu íssósa frá Emmessís
    súkkulaði að eigin vali, saxað
 
Aðferð: Blandið bræddu smjöri og muldum makkarónum vel saman. Látið ís í form, gott er að nota form sem er annað hvort úr siliconi svo auðvelt sé að ná honum úr forminu eða láta plastfilmu í formið áður en ísinn er settur í. Látið síðan makkarónumulninginn yfir ísinn og þrýstið honum lítillega niður í ísinn. Látið í frysti í að minnsta kosti klukkustund. Takið úr frysti og látið ískökurnar á diska. Látið rjóma á toppinn með sprautustúti, hellið smá karamellusósu yfir
og stráið súkkulaði yfir allt. Myndir og uppskrift af grgs.is.
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir