How To Be Single

Króksbíó 14. febrúar kl. 20:00-22:00
14feb

Króksbíó sýnir rómantísku gamanmyndina How To Be Single sunnudaginn 14. febrúar kl. 20:00. Með aðalhlutverkin fara Dakota Johnson, Rebel Wilson og Leslie Mann.

Þetta eru þær Alice, Robin, Meg og Lucy sem eiga að baki margvíslega reynslu í samskiptum við karlmenn og eru missáttar við að vera einhleypar. En það að vera á lausu bíður hins vegar líka upp á ýmislegt, enda enginn skortur á karlmönnum á börum og skemmtistöðum borgarinnar og sú sem telst reynslumest í því að vera einhleyp, Robin, reynir hvað hún getur til að kenna hinum þremur tæknina. Það gengur hins vegar upp og ofan, kannski vegna þess að í ástamálum getur enginn, hvorki karlar né konur, lært neitt nema af eigin reynslu.

Myndin er bönnuð innan 12 ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.