Arnar Þór Sævarsson ráðinn aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra

Arnar Þór Sævarsson.
Arnar Þór Sævarsson.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur ráðið Arnar Þór Sævarsson, sveitarstjóri á Blönduósi, sem aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir að Arnar Þór muni sinna afmörkuðum verkefnum fyrir ráðherra samhliða störfum sveitarstjóra til vors en komi að fullu til starfa í velferðarráðuneytinu í vor. Arnar Þór er annar tveggja aðstoðarmanna Ásmundar en hinn er Sóley Ragnarsdóttir.

Arnar Þór útskrifaðist úr lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1999 og tók ári síðar réttindi til að gegna lögmennsku. Frá árinu 2007 hefur hann gegnt stöðu sveitarstjóra á Blönduósi en var áður aðstoðarmaður Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og viðskiptamálaráðherra 2006 – 2007. Arnar Þór starfaði sem lögfræðingur hjá Símanum árin 2002 til 2006 og sem lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu árin 1999 – 2002.

Arnar Þór er fæddur árið 1971. Maki hans er Gerður Beta Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á Landspítala og eiga þau þrjú börn.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir