Ásdís Brynja Jónsdóttir valin íþróttamaður USAH
Ungmennasambands Austur Húnvetninga var haldið í gær á Húnavöllum. Á þingið mættu fulltrúar allra aðildarfélaga, utan eins, auk gesta frá UMFÍ. Í máli Rúnars A. Péturssonar, formanns USAH, kom fram að starfsemi síðasta árs var blómleg, fjölmargt var gert og mörg afrek unnin hjá félögum í USAH. Rekstur sambandsins gekk vel og má aðallega þakka það auknum tekjum af Lottói.
Hvatningarverðlaun USAH voru afhent á þinginu en þau hlaut Sigrún Líndal hjá Fram á Skagaströnd fyrir óeigingjarnt starf sitt fyrir sambandið og margar nýjungar sem hún hefur bryddað upp á í starfi sínu á Skagaströnd. Einnig var tilkynnt um val á íþróttamanni ársins hjá USAH og fyrir valinu varð Ásdís Brynja Jónsdóttir hjá Hestamannafélaginu Neista.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.