Lamba-, ær-, og folaldakjöt frá Sölvanesi

Eydís og Máni á góðri stundu. MYND: AÐSEND
Eydís og Máni á góðri stundu. MYND: AÐSEND

Hjónin Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir, sem búa á bænum Sölvanesi í Skagafirði, bjóða upp á ýmislegt góðgæti í bíl smáframleiðenda þegar hann er á ferðinni. Í Sölvanesi er rekinn búskapur með sauðfé og hross en einnig bjóða þau upp á gistingu þar sem náttúruunnendur og útivistarfólk ætti að hafa nóg fyrir stafni því margar góðar gönguleiðir eru í námunda við bæinn.

Það var fyrir þremur árum að þau hjón ákváðu að prófa að framleiða vörur úr eigin hráefni í Vörusmiðju Biopol á Skagaströnd og má segja að tilraunin hafi undið vel upp á sig því nú bjóða þau upp á nokkrar mismunandi vörur. Má þar nefna bláberjagrafinn og reyktan ærvöðva, grafinn ærvöðva, ítalskar kjötbollur, beykireykt kindabjúgu, fars og gúllas. Úr folaldakjöti hafa þau meðal annars framleitt JÓR sem er berjagrafið og reykt folaldakjöt. „Við höfum selt vörurnar
okkar heima á býlinu, á bændamörkuðum t.d. á Hofsósi, Hvanneyri og víðar, á heimasíðu Beint frá býli, í gegnum REKO og nú síðast í Sælkerabílnum SMÁFRAMLEIÐENDUR Á FERÐINNI og í vefverslun Vörusmiðjunnar. Viðtökurnar í sölubílnum hafa verið frábærar og vonandi verður framhald á því verkefni.

Býlið er í lífrænni aðlögun eins og er og vonandi náum við að fá lífræna vorrun á næsta ári.“ Við fengum svo hjónin til að koma með nokkrar uppskriftir þar sem vörurnar þeirra fá að njóta sín og mælum við með því að fara inn á netverslunina vorusmidja.is og panta þessar girnilegu vörur sem þau hjón eru
að framleiða.

FORRÉTTUR
Bláberjagrafið ærfille á snittubrauði

AÐFERÐ: Bræðið smjör og smá sítrónusafa á pönnu. Skerið snittubrauðið og ristið öðru megin í smjörinu. Raðið á fat. Setjið smá bláberjasultu
á brauðið. Svo kemur Laugarmýrarsalat, klettasalat og sneið af grafna kjötinu, einnig má setja sneið af Brie osti ef vill. Skreytið fatið með bláberjum og
setjið svo smávegis af balsamik gljáa yfir. Namm!

AÐALRÉTTUR
Marokkóskur pottréttur


Þessi marokkóski pottréttur með lamba- eða ærgúllasi er í miklu uppáhaldi hjá Eydísi en upphaflega uppskriftin er frá Nönnu Rögnvaldar, þó aðeins breytt:
700 g ærgúllas
salt og pipar
2 msk. olía
1–2 laukar, smátt skornir (má sleppa)
2–3 kramin hvítlauksrif
2–3 gulrætur í sneiðum
100 g þurrkaðar apríkósur
2 tsk. cumin
2 tsk. kóríanderduft
1 tsk. túrmerik
1/2 tsk. kanill
100 ml chilitómatsósa eða
önnur sterk tómatsósa
chiliflögur eftir smekk
pínu cayennapipar
1/2 l vatn
1 dós kjúklingabaunir
50 g möndlur (ef vill)

AÐFERÐ: Hitið ofninn í 170°C. Þerrið kjötið, skerið í litla bita og kryddið með salti og pipar. Brúnið í olíu á pönnu eða steypujárnspotti, takið svo upp með gataspaða og setjið til hliðar. Bætið olíu á pönnu og mýkið gulrætur, hvítlauk og lauk, stráið kryddunum yfir, hrærið chilisósunni út í og loks apríkósunum
og kjötinu. Síðast fara baunirnar og möndlurnar í. Færið í eldfast mót eða setjið bara lok á steypujárnspottinn og inn í ofn í u.þ.b. klukkutíma. Þetta er einn af þessum réttum sem er ennþá betri daginn eftir.

Bíll Smáframleiðenda verður á ferðinni næst fyrir páskana eða dagana 23.mars til og með 27.mars. Hér fyrir neðan má sjá hvar og hvenær:) 

23.3 Skagastönd, Vörusmiðja BioPol
11.00-13.00
23.3 Blönduós, B&S Restaurant
15.00-17.00
24.3 Fljót, Keteilás
15.00-17.00
25.3 Borðeyri, Riishús
11.00-13.00
25.3 Hvammstangi, Sjávarborg
15.00-17.00
26.3 Sauðárkrókur, KK restaurant
11.00-13.00
26.3 Hólar, Bjórsetur Íslands
15.00-17.00
27.3 Hofsós, Suðurbraut
11.00-13.00
27.3 Varmahlíð, Alþýðulist
15.00-17.00

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir