Farið yfir lög um gatnagerðargjald

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir lög um gatnagerðargjald en 1. júlí næstkomandi verða liðin 10 ár frá því að lögin gengu í gildi. Á vef ráðuneytisins kemur fram að talið sé tímabært að fara yfir reynsluna af framkvæmd laganna meðal annars með hliðsjón af fyrirliggjandi dómum og úrskurðum.

Starfhópinn skipa:
Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður og jafnframt formaður, skipuð án tilnefningar, Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður, skipuð samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Hrunamannahrepps, skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlynur Ingason, lögfræðingur, skipaður samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. 
Jafnframt er ákveðið að með starfshópnum starfi Ólafur Kr. Hjörleifsson, lögfræðingur í ráðuneytinu.

Markmið starfshópsins er að fara yfir reynsluna af framkvæmd laganna með hliðsjón af fyrirliggjandi dómum og úrskurðum, meðal annars varðandi ákvæði um rétt til endurgreiðslu ef lóð er skilað. Jafnframt er hlutverk starfshópsins að fara yfir gildissvið laganna m.a. út frá því hvort eðlilegt væri að leggja gatnagerðargjald með einhverjum hætti eða í ákveðnum tilvikum á nýbyggingar utan þéttbýlis eða skilgreina þéttbýli með öðrum hætti en gert er samkvæmt gildandi lögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir