Forsvarsfólk helstu fiskeldisfyrirtækja landsins heimsótti Hóla

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, heldur tölu á vinnustofunni. MYND: HÓLAR.IS
Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, heldur tölu á vinnustofunni. MYND: HÓLAR.IS

Forsvarsfólk helstu fiskeldisfyrirtækja landsins heimsótti Hóla á dögunum til þess að taka þátt í vinnustofu um verknám í fiskeldi. Sagt er frá því á heimasíðu Háskólans á Hólum að vinnustofan var liður í norræna samstarfsverkefninu BRIDGES sem hefur það meðal annars að markmiði að efla samstarf skóla og iðnaðar.

Hópurinn, ásamt akademísku starfsfólki fiskeldis- og fiskalíffræðideildarinnar og fulltrúum frá Háskólanum á Akureyri og Fisktækniskóla Íslands, kom saman til kvöldverðar og samveru á fimmtudagskvöldi en vinnustofan sjálf var svo haldin á föstudeginum,“

Þar kynnti Hólmfríður Sveinsdóttir rektor það helsta sem er framundan í starfi skólans og fulltrúar frá fiskeldisdeildinni kynntu sig, starf deildarinnar, námsleiðir og námskeið. „Að því loknu var fjallað um móttöku verknema í fyrirtækjum og hlutverk móttökuaðila og leiðbeinenda. Að lokum unnu þátttakendur saman í umræðuhópum og niðurstöður umræðna verða nýttar við gerð handbókar um verknám.“

Fram kemur í fréttinni að eitt af verkefnum skólans í BRIDGES verkefninu sé að vinna að umbótaverkefnum innan deildarinnar og meðal þess sem unnið er að er að endurskoða verknámið og verkferla í kringum það. „Vinnustofan var árangursrík og héldu gestir og gestgjafar heim bjartsýnir á áframhaldandi samstarf,“ segir að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir