Húni er mættur á svæðið í 45. sinn

Það marg borgar sig að vera í áskrift af Húna. MYND AF FB USVH
Það marg borgar sig að vera í áskrift af Húna. MYND AF FB USVH

Út er komið ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, Húni, en þettu mun vera 45. árgangur ritsins. Í Húna eru birtar fréttir síðasta árs úr öllum „gömlu sveitarfélögunum“ sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði.

Meðal annars efnis í ritinu nú eru: viðtal við Sigurrós Jónsdóttur á Kolbeinsá, grein um sameiningu sveitarfélaga í Húnaþing vestra eftir Pétur Vilhjálmsson, sjómerki á Vatnsnesi eftir Þórð Skúlason, frásagnir eftir Hrafnhildi Víglundsdóttur, Þór Magnússon og Benedikt Axelsson auk ljóða eftir Þórdísi Guðjónsdóttur.

Ritnefnd annast útgáfu Húna í sjálfboðavinnu og allur ágóði af útgáfu hans rennur til íþrótta- og æskulýðsstarfs USVH.

Útgáfan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Húni er að berast áskrifendum þessa dagana, en hann er einnig seldur í lausasölu í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga, Gallerí Bardúsa og Riishúsi á Borðeyri.

Eins er hægt að panta eintak og/eða gerast áskrifandi með því að senda tölvupóst á netfangið usvh@usvh.is - Verð fyrir eintak af Húna í áskrift er 3.500 kr. en í lausasölu kostar Húni 4.500 kr. Einnig verður rukkað fyrir póstburðargjald ef senda þarf bókina til kaupanda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir