Jóhann Örn ráðinn í nýtt starf tengslafulltrúa hjá Húnaþingi vestra

Jóhann Örn. MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA
Jóhann Örn. MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA

Jóhann Örn Finnsson var í gær boðinn velkominn í nýtt og spennandi starf sem styðja mun við farsæld barna í Húnaþingi vestra. Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að hann hafi verið ráðinn í nýtt starf tengslafulltrúa á fjölskyldusviði sem auglýst var á dögunum.

„Tengslafulltrúi mun starfa með ungmennum í Húnaþingi vestra í samræmi við áherslur farsældarlaga og er tengiliður þeirra við stjórnkerfi og stofnanir. Hann mun leitast við að aðstoða ungmenni við að finna ástríðu sína og vinna að henni með fjölbreyttu tómstundastarfi og stuðningi. Hann mun hvetja ungmenni til þátttöku og verða málsvari þeirra í málum sem þau varða, tala fyrir hugmyndum þeirra í sveitarfélaginu og hvetja til virkni og þátttöku,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að tengslafulltrúi muni einnig vinna í samráði við sveitarfélagið og íbúa að þróun og uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar í Félagsheimilinu Hvammstanga sem hugsuð er fyrir fjölbreytt tómstundastarf ungmenna og annarra íbúa sveitarfélagsins.

Jóhann Örn er með BS í íþrótta- og heilsufræði og stundar meistaranám í tómstunda- og félagsmálafræði. Hann hefur reynslu af störfum með ungmennum á vettvangi frítímans sem þjálfari, verkefnisstjóri og leiðbeinandi þar sem reynt hefur á samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Í vetur hefur hann starfað í félagsmiðstöðinni Óríon en Jóhann Örn mun hefja störf á næstunni.

Heimild: Húnaþing.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir