Króksbrautin lokuð við Áshildarholt 8. maí
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir
07.05.2024
kl. 11.13
gunnhildur@feykir.is
Vegagerðin biðlar til vegfarenda sem eiga leið eftir þjóðvegi 75, Sauðárkróksbraut, að athuga að vegurinn verður lokaður við bæinn Áshildarholt á morgun, miðvikudaginn 8. maí, frá kl. 9:00 og fram eftir degi.
Í fyrirspurn um hjáleið var sagt að hægt væri að fara á minni bílum eftir reiðveginum en annars er vegfarendum bent á að keyra Blönduhlíðina.
Fleiri fréttir
-
Minni halli á Skagaströnd en áætlanir gerðu ráð fyrir
Húnahornið segir frá því að Sveitarfélagið Skagaströnd hafi skilað 46,8 milljón króna neikvæðri rekstrarniðurstöðu í fyrra en síðari umræða um ársreikning sveitarfélagsins 2023 fór fram á sveitarstjórnarfundi þann 10. maí sl. Niðurstaðan var þó 8,7 milljónum króna betri en áætlun með viðaukum haft gert ráð fyrir.Meira -
Vantaði upp á orkustigið og stemninguna
„Þetta var ekkert sérstakur leikur af okkar hálfu og við getum betur, sérstaklega með boltann,“ sagði Donni þjálfari Stólastúlkna þegar Feykir spurði hann út í bikarleikinn gegn liði Þórs/KA sem fram fór í gær en Akureyringar höfðu betur 1-2. „Vissulega spila aðstæður stóran þátt því það var mikill vindur á annað markið. En jafnvel með vindinum fannst mér pláss til að gera betur. Úrslitin voru svekkjandi og sanngjörn en frammistaðan er það sem við horfum í og þar viljum við gera betur.“Meira -
Gjöf foreldrafélagsins til Leikskóla Húnabyggðar
Á dögunum afhenti Foreldrafélag Leikskóla Húnabyggðar leikskólanum að gjöf tvær barnakerrur fyrir 4-6 börn. Í tilkynningu frá Foreldrafélagi Leikskóla Húnabyggðar segir að hugmyndin sé að þær nýtist sérstaklega yngstu deild leikskólans sem nú er til húsa við Húnabraut 6 og auðveldi þannig heimsóknir þeirra upp í aðalbyggingu leikskólans. Ein 6-barna kerra hefur nú þegar verið afhent og von er á annarri 4-barna kerru í sendingu á komandi vikum.Meira -
„Get talað endalaust um kaffi“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 19.05.2024 kl. 09.00 gunnhildur@feykir.isVala tekur á móti blaðamanni Feykis á heimili sínu, Páfastöðum 2 í Skagafirði, þar sem þær Vala Stefánsdóttir og Rannveig Einarsdóttir hafa búið sér fallegt heimili og eru langt komnar með að útbúa litla kaffibrennslu í skúrnum sem á sumum heimilum er byggður fyrir bíla. Vala hefst strax handa við að útbúa kaffi handa blaðamanni, sem er venjulegur leikmaður þegar kemur að kaffi – kaupir Grænan Braga í búðinni og hellir upp á kaffi í venjulegri kaffivél og hellir því svo á brúsa, drekkur það svo svart og sykurlaust. Það er ekki ferlið sem Vala tekur blaðamanninn með sér í. Hún byrjar á að setja kaffibaunir í kvörn, sem koma frá samnefndu fyrirtæki, Kvörn, sem Vala er hluthafi í. Hún hellir „upp á gamla mátann“ eins og blaðamaður hefur heyrt sagt um aðferðina hennar Völu. Hún malar kaffið í kvörninni og hellir svo soðnu vatni yfir það. Það er kúnst, því bleyta þarf fyrst upp í öllu kaffinu og hægt er að segja til um ferskleika kaffisins eftir loftbólumynduninni þegar vatnið fer yfir kaffið. – Það er vel hægt að fullyrða að fyrir Völu er kaffi ekki bara kaffi.Meira -
Lagfæringar á gervigrasvellinum komnar á fullt
Það horfir til betri vegar á gervigrasvellinum á Króknum en hann varð fyrir skemmdum fyrir um fjórum vikum síðan í all harkalegum vorleysingum. Viðgerðir hófust í gærmorgun en í frétt á síðu Skagafjarðar segir að á meðan á viðgerðum stendur verður hluta vallarins lokað en hægt verður að æfa á þeim hluta sem ekki varð fyrir skemmdum.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.