Ný plata væntanleg frá Geirmundi

Geirmundur Valtýsson.
Geirmundur Valtýsson.

Hinn ástsæli tónlistarmaður Geirmundur Valtýsson vinnur nú að útgáfu hljómplötunnar  Skagfirðingar syngja. Líkt og nafn plötunnar gefur til kynna hefur Geirmundur fengið til liðs við sig fjölda skagfirskra tónlistarmanna.

Platan inniheldur fjórtán lög og að sögn Geirmundar er áætluð útkoma hennar í síðustu viku nóvembermánaðar. Þá er stefnt á að halda útgáfutónleika í Menningarhúsinu Miðgarði sunnudaginn 6. desember. Nú geta Skagfirðingar farið að hlakka til og tekið daginn frá. Nánar verður fjallað um Skagfirðingar syngja í næsta Feyki. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir