rabb-a-babb 37: Arnar Halldórs
Nafn: Arnar Halldórsson.
Árgangur: 1967
.
Fjölskylduhagir: Giftur henni Jónu Hjalta saman eigum við 4 stráka
.
Starf / nám: Tæknimaður hjá Skýrr á Sauðárkróki.
Bifreið: Maður þarf ekki bíl á Hólaveginum
.
Hvað er í deiglunni: Stefni á að vera búinn að ná 4 Microsoft prófgráðum í vor.
Hvernig hefurðu það?
Alltaf brattur.
Hvernig nemandi varstu?
Samviskusamur í grunnskóla og áhugasamur í framhaldsskóla.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum?
Það vantaði sultu með kjötinu í veislunni, ótrúleg yfirsjón, en það var snarlega bætt úr því....
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði að verða ýtustjóri.
Hvað hræðistu mest?
Að brjóta á mér hnéskeljarnar.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)?
One step beyond með Madness, ótrúlega hressir gaurar!
Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja í Kareókí? Hraustir menn!!!
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)?
Spooks.
Besta bíómyndin?
Ekki gott að segja til um það.
Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow?
Það væri Brúsinn og Angelina.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann?
Það er þá helst eitthvað gott brauð og túnfisksalat.
Hvað er í morgunmatinn?
Weetabix hollt og trefjaríkt á morgnana.
Uppáhalds málsháttur?
Bylur hæst í tómri tunnu.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín?
Viggó Viðutan hefur einstakt hugmyndaflug.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?
Steiktur fiskur, það segir Jóna allavega.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Öxin og jörðin kemur fyrst upp í hugann.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...
að hitta Egil félaga minn í Ástralíu, verst hvað það er heitt þar núna.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu?
Kæruleysi og leti.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Metnaðarleysi og vanræksla.
Enski boltinn - hvaða lið og af hverju?
Ég var alinn upp við að halda með Man. United. Ég hef tekið þátt í þeirra gleði, en ekkert verið mikið að velta mér uppúr þeirra sorgum ? ekki sérlegur áhugamaður um knattspyrnu.
Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu mestar mætur á?
Strákarnir mínir eru í körfubolta og sundi, alveg hreint ágætir íþróttamenn.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Heim í Búðardal.
Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati?
Þær eru nokkrar sem skara framúr á sviði vísinda og framfara, stjórnmála, mannréttindamála, dægurtónlistar/listar. Það er erfitt að gera upp á milli.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?
Leatherman - stappfullan MP3 spilara - hengirúm.
Hvað er best í heimi?
2. tenór er bestur í Heimi J.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.