Skemmtileg eða leiðinleg vangavelta?
Herra Hundfúll var að velta því fyrir sér hvort leiðinlegu fólki fyndist það sjálft vera skemmtilegt. Og þá líka hvort skemmtilegu fólki fyndist það sjálft vera leiðinlegt. En sennilega er þetta ekki svona einfalt?
Fleiri fréttir
-
Gjöf foreldrafélagsins til Leikskóla Húnabyggðar
Á dögunum afhenti Foreldrafélag Leikskóla Húnabyggðar leikskólanum að gjöf tvær barnakerrur fyrir 4-6 börn. Í tilkynningu frá Foreldrafélagi Leikskóla Húnabyggðar segir að hugmyndin sé að þær nýtist sérstaklega yngstu deild leikskólans sem nú er til húsa við Húnabraut 6 og auðveldi þannig heimsóknir þeirra upp í aðalbyggingu leikskólans. Ein 6-barna kerra hefur nú þegar verið afhent og von er á annarri 4-barna kerru í sendingu á komandi vikum.Meira -
„Get talað endalaust um kaffi“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 19.05.2024 kl. 09.00 gunnhildur@feykir.isVala tekur á móti blaðamanni Feykis á heimili sínu, Páfastöðum 2 í Skagafirði, þar sem þær Vala Stefánsdóttir og Rannveig Einarsdóttir hafa búið sér fallegt heimili og eru langt komnar með að útbúa litla kaffibrennslu í skúrnum sem á sumum heimilum er byggður fyrir bíla. Vala hefst strax handa við að útbúa kaffi handa blaðamanni, sem er venjulegur leikmaður þegar kemur að kaffi – kaupir Grænan Braga í búðinni og hellir upp á kaffi í venjulegri kaffivél og hellir því svo á brúsa, drekkur það svo svart og sykurlaust. Það er ekki ferlið sem Vala tekur blaðamanninn með sér í. Hún byrjar á að setja kaffibaunir í kvörn, sem koma frá samnefndu fyrirtæki, Kvörn, sem Vala er hluthafi í. Hún hellir „upp á gamla mátann“ eins og blaðamaður hefur heyrt sagt um aðferðina hennar Völu. Hún malar kaffið í kvörninni og hellir svo soðnu vatni yfir það. Það er kúnst, því bleyta þarf fyrst upp í öllu kaffinu og hægt er að segja til um ferskleika kaffisins eftir loftbólumynduninni þegar vatnið fer yfir kaffið. – Það er vel hægt að fullyrða að fyrir Völu er kaffi ekki bara kaffi.Meira -
Lagfæringar á gervigrasvellinum komnar á fullt
Það horfir til betri vegar á gervigrasvellinum á Króknum en hann varð fyrir skemmdum fyrir um fjórum vikum síðan í all harkalegum vorleysingum. Viðgerðir hófust í gærmorgun en í frétt á síðu Skagafjarðar segir að á meðan á viðgerðum stendur verður hluta vallarins lokað en hægt verður að æfa á þeim hluta sem ekki varð fyrir skemmdum.Meira -
Útboð á nýrri leikskólabyggingu Húnabyggðar
Húnabyggð óskar eftir tilboðum í uppsetningu og afhendingu á ca. 650-700 m2 leikskóla úr húseiningum, timbur- eða gámaeiningum til leigu á lóð við hlið núverandi leikskóla að Hólabraut 17 með kaupsréttarákvæðum. Í byggingunni verða fjórar leikskóladeildir.Meira -
Stólastúlkur dottnar út eftir hörkuleik gegn sameinuðum Akureyringum
Tindastóll og Þór/KA mættust á Dalvíkurvelli í hádeginu í dag í fyrsta leiknum í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Nokkur vindur var og einstaka slyddubakki gekk yfir Eyjafjörðinn meðan á leik stóð og lék vindurinn nokkuð hlutverk í því hvernig leikurinn þróaðist. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik og leiddu gestirnir í Þór/KA 1-2 í hálfleik en ekki tókst liðunum að skora í þeim síðari þrátt fyrir sénsa á báða bóga.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.