Æfingabúðir í júdó í Varmahlíð um helgina

Frá æfingu í Svíþjóð í fyrra, Iura sýnir bragð. Mynd af Tindastóll.is.
Frá æfingu í Svíþjóð í fyrra, Iura sýnir bragð. Mynd af Tindastóll.is.

Næstkomandi helgi, 11. til 13. ágúst, verða haldnar æfingabúðir í júdó í íþróttahúsinu í Varmahlíð. Búist er við yfir sextíu júdóiðkendum frá Linköping og Stokkhólmi í Svíþjóð, Júdódeild Ármanns í Reykjavík, Pardusi á Blönduósi, Draupni á Akureyri ásamt Júdódeild Tindastóls. Leiðbeinendur verða m.a. Yoshihika Iura 8. dan og Ann Löf 6. dan, sem búa bæði yfir mikilli þekkingu og reynslu í íþróttinni.

Á heimasíðu Júdódeildar Tindastóls segir að æfingabúðirnar verði opnar fyrir alla júdóiðkendur á svæðinu og er ekkert gjald tekið fyrir. Einnig eru allir velkomnir að kíkja við og fylgjast með æfingunum, sem verða á eftirfarandi tímum:

 

Dagur                                         Tími

Föstudagur 11. ágúst              18:00 - 19:30

Laugardagur 12. ágúst            10:00 - 11:30

Sunnudagur 13. ágúst             10:00 - 11:00

Sunnudagur 13. ágúst             11:00 - 12:30

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir